Auglýsingar

Vefurinn Sport.is hefur verið einn öflugasti íþrótta- og afþreyingarvefur landsins um árabil. Hann var upprunalega stofnaður sem Sportid.is, en nafninu var breytt í Sport.is árið 2001. Sport.is hefur alla tíð verið með fjölsóttustu vefjum landsins og hefur hann áunnið sér gott orðspor og þykir koma umfjöllunarefni sínu á framfæri á ábyrgan og faglegan hátt.

Mikill fjöldi lesenda heimsækir síðuna í viku hverri, en áætlaður  heimsóknarfjöldi er á bilinu 40-50 þúsund (Google Analyctics).  Mikill meðbyr hefur verið með vefnum eftir uppfærslur og endurskipulagningu og hefur aðsóknin aukist jafnt og þétt.  Hver lesandi eyðir að meðaltali tæpum þremur mínútum inni á vefnum í hverri heimsókn og flettingar á hverja heimsókn eru tæplega þrjár.

Sport.is leggur áherslu á að sinna innlendum íþróttaviðburðum eins og kostur er og Sportvarpið ruddi braut sem aðrir hafa fylgt; tekin eru myndbandsviðtöl við lærða og leika eftir kappleiki og birtast þau ásamt umfjöllun og tölfræði skömmu eftir að viðkomandi leikjum lýkur.  Myndbandsformið hefur einnig verið nýtt í Sportspjallinu, lengri og ítarlegri viðtölum við íþróttafólk af öllum stærðum og gerðum.
Erlendar íþróttafréttir skipa að sjálfsögðu einnig stóran sess á síðum Sport.is og fylgst er nokkuð náið með vinsælustu greinunum; ensku, spænsku, ítölsku og þýsku knattspyrnunni, Meistaradeild, Evrópudeild, þýska handboltanum, NBA, NFL, íshokkíi og golfi, svo fátt eitt sé nefnt.

Hjá Sport.is starfa harðduglegir og ósérhlífnir íþróttafréttamenn sem eru fljótir að greina kjarnann frá hisminu.  Þeir hafa að leiðarljósi að koma efninu til skila á hraðan, vandaðan og skilmerkilegan hátt.

Hérna má sjá hvaða auglýsingasvæði eru í boði. Vinsamlega leitið tilboða með auglýsingabirtingar með því að senda tölvupóst á auglysingar@sport.is.  Athugið að einnig má skoða annarskonar auglýsingabirtingar eins og birting vörumerkja við fréttir eða fréttaflokka. Sendið okkur upplýsingar um hvað þitt fyrirtæki hefur í huga og við sendum hugmyndir um auglýsingabirtingar eða annarskonar samstarf.

Forsíða: Stærð px Staðsetning: Verð per viku:
Skýjakljúfur 150 X 600 Allar síður Leitið tilboða
Hausborði 285 X 86 Hægri Leitið tilboða
Hausborði 285 X 86 Vinstri Leitið tilboða
Risaborði 960 X 600 Neðst á forsíðu Leitið tilboða
Borðar fyrir miðju:
Svæði 1 612 X að 200 Efst (undir sportvarpi) Leitið tilboða
Svæði 2 612 X að 200 Undir aðrar fréttir Leitið tilboða
Svæði 3 612 X að 200 Næst neðstur á síðu Leitið tilboða
Svæði 4
612 X að 200
Neðstur á síðu Leitið tilboða
Box | Hliðarbox
Forsíða og undirsíður 270 X 400 Allar síður Leitið tilboða
Stök frétt (Borði undir stakri frétt)
612 X að 200 Undir stakri frétt Leitið tilboða
-
Auglýsing á farsímavef m.sport.is Leitið tilboða
Mobile – auglýsing 236 X 71
-
Lifandi auglýsing í Sportvarpi 640 X 360px eða
PAL-stærð
4-40 sekúndur Leitið tilboða

Auglýsingasvæði