Það er allt á suðupunkti í Serbíu í þessum töluðu orðum. Stórleikur Serba og Króata fer fram í kvöld í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik. Serbar eru sem fyrr á heimavelli en þeirra næsta nágrannaþjóð, Króatar, munu fjölmenna á leikinn. Fyrir liðlega 20 árum léku Serbía og Króatía undir einu flaggi, Júgóslavíu. Eftir að Júgóslavía liðaðist í sundur hefur verið mikið hatur á milli þessara þjóða sem oftar en ekki hefur brotist út í blóðugum átökum. Mikillar þjóðerniskenndar kennir hjá báðum þjóðum og getur önnur þjóðin ekki ímyndað sér að tapa fyrir hinni.
Nú hefur forseti Serbíu, Boris Tadic, skorist í leikinn. Hann biðlar til þegna sinna að hegða sér sómasamlega fyrir og eftir leik í dag. Von sé á mörgum Krótötum á leikinn en það sé engin ástæða til þess að upphefja slagsmál og ofbeldi. Í fyrradag var ráðist að hópi Króata sem voru á leið til Belgrad frá Novi Sad eftir leik Króata og Ungverja í milliriðlinum. Þar voru að verki hópur þjóðerninssinnaðra Serba. Einnig var kveikt í tveimur bifreiðum sem stóðu fyrir utan hótel í Novi Sad, sem voru í eigu serbneska handknattleikssambandsins. Alls hafa 13 manns verið handteknir í tenglsum við uppþot fyrir leikinn stóra í dag. Leikurinn í kvöld fer fram í 20 þúsund manna höll í Belgrade og er uppselt á leikinn.
Leikur Serba og Króatíu hefst klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á RÚV. Það lið sem vinnur leikinn mun spila til úrslita á sunnudaginn. Þar mun sigurvegarinn mæta sigurvegaranum úr viðureign Dana og Spánverja sem hefst klukkan 16.45 í dag.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook