Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dómarar hafa fengið almennt fyrir dómgæslu sína á mótinu en félagarnir dæmdu þrjá leiki á mótinu. Hlynur Leifsson fékk svo flensu og því var ljóst að þeir myndu ekki dæma fleiri leiki. Það hefði verið áhugavert að vita hvaða leik þeir áttu að dæma í dag en þrír leikir eru í á dagskránni á EM. Klukkan 14.15 leika Makedónar og Slóvenar um 5.-6. sætið, klukkan 16.45 er fyrri undanúrslitaleikur dagsins sem er leikur Spánverja gegn Dönum og svo endar dagskránni í dag með leik Serba og Króata klukkan 19.15.
Það er ekki vitað hvaða leik félagarnir myndu dæma en miðað við að þeir hafa fengið góðar umsagnir fyrir dómgæsluna hingað til þá er ekki ólíklegt að það væri undanúrslitaleikur. Hynur er með hálsbólgu og kvef og mun því væntanlega horfa á undanúrslitin í sjónvarpinu.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook