Danir, sem komu stigalausir inn í milliriðilinn á EM í handknattleik í Serbíu, tryggðu sér í dag sæti í úrslitaleiknum á sunnudag með því að leggja Spánverja að velli í hádramatískum og spennandi undanúrslitaleik, 25-24. Mikkel Hansen, sem annars var svipur hjá sjón, skoraði sigurmark Dana tæpri mínútu fyrir leikslok.
Danmörk 25-24 Spánn (12-10)

Óhætt er að segja að taugar hafi verið þandar í upphafi leiks Dana og Spánverja í dag, sóknarleikur beggja var á köflum stirðsbusalegur en varnarleikur og markvarsla í þeim mun betra lagi. Spánverjar spiluðu lengstum sína annálaðu 5-1 vörn og nokkra athygli vakti að Rivera Spánarþjálfari skyldi velja að smella Jose Manuel Sierra í markið. Það skilaði reyndar ágætum árangri, Sierra var Dönum erfiður og sóknarleikur þeirra var kauðskur fram eftir öllum fyrri hálfleiknum. Spánverjar tóku ágætan sprett snemma leiks og náðu fjögurra marka forystu, 7-3, en Danir minnkuðu muninn jafnharðan og jafnræði var með liðunum um miðbik hálfleiksins. Danska sveiflan hófst straxí kjölfar leikhlés sem Wilbek tók og ræðuhöld hans skiluðu ljómandi góðum árangri. Danska vörnin þéttist og þéttist eftir því sem á leið, en um tíma skiptust liðin á að gera í brók; Danir hentu boltanum út af hvað eftir annað á meðan Spánverjum var algjörlega fyrirmunað að skora úr úrvalsfærum. Landin markvörður var þá búinn að skjóta þeim skelk í bringu með ágætri markvörslu, vörðu skotin fjögur sem á hann eru skráð í fyrri hálfleik segja nefnilega ekki alla söguna. Danir náðu hins vegar að stilla sig ágætlega af á lokakaflanum og þeir skoruðu fjögur síðustu mörk fyrri hálfleiks, breyttu stöðunni úr 8-10 í 12-10. Mikkel Hansen, sem var heillum horfinn allan fyrri hálfleikinn og skoraði ekki úr fimm fyrstu skotunum sínum, skoraði síðasta mark hálfleiksins beint úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn.
Danir héldu sveiflunni áfram á upphafsmínútum síðari hálfleiks, spiluðu þéttingsfast í vörninni og fundu ágæt marktækifæri af þolinmæði og þrautseigju. Þeim tókst að slá taktinn úr Spánverjum, sem eyddu dágóðum tíma í þrætur og ásakanir, virtust lafhræddir við Landin í markinu og vöknuðu upp við þann vonda draum að forysta Dana var orðin fjögur mörk. Sú var tíðin að spænsk íþróttakapplið brotnuðu við mótlæti af þessu tagi, leikmenn hengdu haus og þusuðu sig út úr leikjum, en spænska handboltalandsliðiði hefur sýnt það, t.d. í leiknum geng Króötum hér á EM, að þetta vandamál heyrir sögunni til. Um miðjan síðari hálfleikinn voru Spánverjar búnir að minnka muninn í eitt mark, 18-17, og fengu færi á að gera jafnvel enn betur. Á þessum kafla spiluðu Spánverjar fáránlega vel í vörninni, vörðu skot og lokuðu á allar sóknaraðgerðir Dana, sem þó náðu að halda í horfinu með því að beita skynsemi og þolinmæði og treysta á Landin í markinu. Mikkel Hansen var harla ólíkur sjálfum sér og virðist engan veginn ganga heill til skógar, hann skaut varla á markið í síðari hálfleik en átti reyndar nokkrar gullfallegar og árangursríkar sendingar. Þéttur varnarleikur Spánverja skilaði einnig ágætri markvörslu Sierra, sem hefur blásið á allar hrakspár, og í stöðunni 19-19 tók Wilbek aftur leikhé. Það skilaði álíka góðum árangri og það sem hann tók í fyrri hálfleik, Danir skoruðu þrjú næstu mörk og staðan var 22-19 þegar tæpar níu mínútur voru til leiksloka. Spánverjar voru hins vegar ekki hættir, héldu áfram að koma Dönum í bullandi vandræði með svakalegum varnarleik og rúmum tveimur mínútum fyrir leikslok jöfnuðu þeir metin, 23-23. Enn var jafnt í 24-24, en Mikkel Hansen skoraði þegar tæp mínúta var til leiksloka, 25-24, og síðasta sókn Spánverja fór forgörðum við misjafnar undirtektir leikmanna og þjálfarateymisins. Danir fögnuðu því eins marks sigri og sæti í úrslitum annars stórmótsins í röð. Kaldhæðni örlaganna hagar því þannig til að þeir slógu Spánverja einnig út í undanúrslitunum á HM í Svíþjóð í fyrra.
Danir eru ágætlega að sigrinum komnir, þeir áttu svör við ógnarsterkum varnarleik Spánverja og fóru fetið á þolinmæði og skynsemi. Þeir sýndu það í þessum leik að breiddin er til staðar, þeir treysta ekki bara á einn ógnarsterkan mann, og héldu haus þegar að þeim var sótt. Spánverjar gráta væntanlega glötuð marktækifæri, en geta í rauninni ekki skammast út í neina nema sjálfa sig. Sóknarleikurinn þeirra höndlaði ekki dönsku vörnina betur en raun ber vitni og óttinn við Landin í markinu var næstum því áþreifanlegur.
Mörk Danmerkur: Rasmus Lauge Schmidt 6, René Toft Hansen 4, Mikkel Hansen 4, Thomas Mogensen 3, Anders Eggert Jensen 3, Henrik Toft Hansen 2, Lars Christiansen 1, Lasse Svan Hansen 1, Hans Lindberg 1.
Varin skot: Niklas Landin 7.
Mörk Spánar: Julen Aguinagalde 5, Jorge Maqueda 4, Raul Enterrios 3, Victor Tomas 2, Daniel Sarmiento 2, Cristian Ugalde 2, Iker Romero 2, Eduardo Gurbindo 1, Roberto Garcia 1, Juan Antonio Garcia 1, Viran Morros 1.
Varin skot: Jose Manuel Sierra 14.
Myndir: Hilmar Þór.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook