Föstudagur, 27. janúar 2012 | Ritstjórn | ritstjorn@sport.is

EM 2012 | Dolli skellir sér í hlutverk lukkudýrsins

Íslenski fréttamaðurinn, Adolf Ingi Erlingson, hefur farið mikinn á Evrópumótinu út í Serbíu. Hann er þar að störfum fyrir evrópska handknattleikssambandið og hefur staðið sig með prýði. Hann hefur verið að taka viðtöl við leikmenn, skoða borgirnar sem leikirnir fara fram og hefur prufað að dansa með klappstýrum mótsins. Það nýjasta eftir Dolla, eins og hann er oft kallaður, er myndband af honum að reyna fyrir sér sem lukkudýr.

Adolf tjáði sig á Facebook síðu sinni um lífsreynsluna: "Prófaði að vera lukkudýr. Heitt og sveitt. Hélt ég myndi deyja. Sá fyrir mér fyrirsagnirnar: Lukkudýr deyr á vellinum. 49 ára afi fær hjartaáfall á handboltaleik" Sjón er sögu ríkari:

Hleður spilara ..