Fari svo að heimamenn Serbar hafi betur gegn Dönum í úrslitaleik Evrópumóts karla í handknattleik á sunndaginn kemur, fara Íslendingar í mun erfiðari undanriðil fyrir Ólympíuleikana í London í sumar. Þá munu Íslendingar leika í riðli með Spánverjum, Slóvenum og Brasilíumönnum, en tvö efstu liðin tryggja sér þátttökurétt á leikunum.
Verði Danir hins vegar Evrópumeistarar munu Íslendingar fara í öllu léttari riðil, með Króötum, Japönum og Chile. Danir geta því gert frændum sínum Íslendingum greiða á sunnudaginn standi þeir uppi sem sigurvegarar.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook