"Þetta er ótrúleg tilfinning. Við trúðum því ekki að við yrðum í þessum sporum áður en við komum inn í milliriðilinn með ekkert stig. Við vorum ótrúlega heppnir með úrslit úr öðrum leikjum og tókst að vinna alla okkar þrjá leiki. Nú erum við komnir hingað." sagði Hans Lindberg, "hinn íslenski" landsliðsmaður Dana, í samtali við Sport.is eftir sigurinn á Spánverjum í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik í kvöld.
"Leikurinn gegn Spánverjum var mjög erfiður, við vissum að það yrði varnarleikur liðanna sem myndi að lokum ráða úrslitunum í þessum leik en við vorum mjög heppnir í lokin. Þrátt fyrir að hafa misst niður þriggja marka forskotið sem við höfðum náð þá var ég aldrei hræddur um að við myndum tapa leiknum. Spánn er hins vegar með mjög gott lið og þeir geta unnið upp svona mun. Stundum fellur þetta með þér og stundum ekki en svoleiðis er handboltinn einfaldlega."
Lindberg segir það ekki skipta máli hvort að Danir mæti Króötum eða heimamönnum í Serbíu í úrslitaleiknum.
"Nei mér er alveg sama hvort liðið við fáum. Það skiptir ekki máli hvort það verða Króatar eða Serbar. Sá leikur verður alltaf jafn erfiður hver sem andstæðingurinn er." sagði Lindberg að lokum við Sport.is.
Úrslitaleikurinn fer fram kl. 16.00 á sunnudaginn og er í beinni útsendingu á RÚV og háskerpustöð Vodafone.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook