Undanúrslitin á Evrópumóti karla í handknattleik í Serbíu fara fram í dag. Fyrri leikurinn er viðureign Dana og Spánverja kl. 16:45 og síðari leikurinn viðureign Serba og Króata kl. 19:15. Spánverjar eru af mörgum taldir sigurstranglegastir, enda hefur liðið sýnt mesta stöðugleikan á mótinu hingað til og ekki tapað leik. Spánverjar unnu Frakka í riðlakeppninni, gerðu jafntefli gegn Ungverjum og unnu Rússa. Í milliriðli tvö unnu þeir Króata, Íslendinga og Slóvena.
Danir voru hins vegar lengi í gang. Þeir unnu Slóvaka í fyrsta leik í riðlakeppninni en töpuðu fyrir Serbum og Pólverjum og fóru í milliriðla án stiga. Í milliriðli eitt var allt með Dönum; liðið hrökk í gírinn og önnur úrslit spiluðust fyrir þá eins og eftir pöntun. Danir unnu ævintýralegan sigur gegn Makedónum, 33-32, í fyrsta leik og lögðu svo Þjóðverja og Svía síðustu tveimur leikjunum. Þjóðverjar klúðruðu sínum málum og Danir gripu gæsina á lofti. Liðið eygjir nú von um að landa sínum öðrum Evrópumeistaratitli á fjórum árum, en liðið varð Evrópumeistari árið 2008. Síðast þegar Danir og Spánverjar mættust á stórmóti unnu Danir með fjögurra marka mun, 28-24, á HM í Svíþjóð í fyrra.
Öryggisgæslan verður í hámarki í Serbíu í kvöld þegar heimamenn taka á móti Króötum. Lítill vinskapur er á milli þessara þjóða vegna sögunnar þarna á milli og viðbúið að allt verði á suðupunkti. Serbar hafa komið mest liða á óvart í keppninni. Þeir byrjuðu á að leggja Pólverja að velli í riðlakeppninni og í kjölfarið kom mjög óvæntur sigur gegn Dönum. Liðið gerði svo jafntefli gegn Slóvakíu í lokaleik riðlakeppninnar en liðið var þá öruggt í milliriðla með fjögur stig. Sá sem einna mesta athygli hefur vakið í liði Serba er markvörðurinn, Darko Stanic, sem hefur verið öflugur á milli stanganna og oftar en ekki valinn maður leiksins hjá liðinu.
Króatar voru í riðli með Íslendingum og unnu strákana okkar ósanngjarnt í fyrsta leik, 31-29. Liðið vann Slóvena með sömu tölum í næsta leik og unnu Norðmenn örugglega í lokaleik riðlakeppninnar. Króatar töpuðu gegn Spánverjum í fyrsta leik í milliriðli en unnu Frakka og gerðu jafntefli við Ungverja. Serbar og Króatar mættust í HM í Svíþjóð í fyrra og skildu þá jöfn, 24-24.
Þótt Íslendingar séu úr leik á mótinu geta úrslitin skipt máli fyrir okkur. Staðan er einfaldlega sú að Serbar mega ekki verða Evrópumeistarar. Fari svo bíður íslenska liðsins erfiður undanriðill fyrir Ólympíuleikana í sumar. Vinni hins vegar Spánverjar, Danir eða Króatar, fara Íslendingar í mun léttari undanriðil.
Einnig verður spilað um fimmta sætið í dag en þar mætast Makedóníu og Slóvenía kl. 14:15.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook