Föstudagur, 27. janúar 2012 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

EM 2012 | Makedónar tryggðu sér fimmta sætið | Lazarov sló markamet Ólafs

Mynd: Hilmar Þór.

Makedónar tryggðu sér í dag fimmta sætið á EM í handknattleik í Serbíu og þar með sæti í forkeppninni fyrir Ólympíuleikana með því að leggja Slóvena að velli í Belgrad Arena 28-27.  Makedónar höfðu fjögurra marka forystu í hálfleik, en Slóvenar hleyptu mikilli spennu í leikinn í síðari hálfleik og voru hársbredd frá því að jafna metin á lokasekúndunum.

Makedónía 28-27 Slóvenía (16-12)

Makedónar náðu tiltölulega fljótlega undirtökunum í leiknum í dag, ekki síst fyrir tilstilli markvarðarins Borko Ristovski sem varði eins og berserkur í upphafi leiks, m.a. tvö vítaköst á fyrstu sjö mínútunum.  Sóknarleikur Makedóna var ekkert sérlega hugmyndaríkur; ef ekki tókst að búa til flugbraut fyrir Kiril Lazarov var boltanum undantekningalítið hnoðað inn á línuna þar sem skriðþungir en stirðbusalegir jálkar eru erfiðir viðureignar.  Lazarov skoraði fimm mörk í fyrri hálfleik, það fimmta og síðasta í þann mund sem leiktíminn rann út, og þar með jafnaði hann mótsmet Ólafs Stefánssonar frá 1998, 58 mörk.  Slóvenar voru  hálfdasaðir í þessum leik, frekar ólíklegir til stórræðna og ljóst að þeir hittu á sinn langbesta leik á EM þegar þeir mættu Íslendingum.  Langbesta.  Varnarleikurinn var lengstum ósannfærandi þótt hann hafi vissulega skánað eftir því sem á leikinn leið og augljós maltskortur gerði það að verkum að sóknarleikurinn var slakur.  Uros Zorman var í raun sá eini sem sýndi einhver merki þess að vera með meðvitund, en sprettirnir hans voru þó harla fátíðir og stóðu stutt yfir.  Dragan Gajic er flinkur hornamaður, en hann fór illa með færin sín í þessum leik.  Reyndar má ekki taka það af markverðinum Gorazd Skof að hann varði á köflum ágætlega.  Makedónar voru sterkari í fyrri hálfleik, dyggilega studdir af sönglandi kátum stuðningsmönnum, en stuðningssveit Slóvenanna taldi u.þ.b. sjö manns.  Þeir hafa líklega ekki reiknað með að komast svona langt í keppninni og brunnið inni með að verða sér úti um miða á leiki dagsins í Belgrad Arena.  Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir Makedóníu og sú forysta var fyllilega verðskulduð.

Slóvenar sýndu það í upphafi síðari hálfleiks að þeir voru ekki dauðir úr öllum æðum, skoruðu sjö af átta fyrstu mörkum hálfleiksins og náðu tveggja marka forystu, 20-18.  Makedónar jöfnuðu fljótlega metin, 21-21, og Kiril Lazarov skráði nafn sitt í sögubækurnar skömmu síðar þegar hann kom Makedónum í 23-22, skoraði þar með 59.markið sitt á EM í Serbíu og sló markamet Ólafs Stefánssonar.  Makedónar náðu undirtökunum í leiknum aftur og höfðu tveggja marka forystu þegar átta mínútur voru til leiksloka.  Þá varði Ristovski vítakast í þriðja sinn og sú varla reyndist rándýr þegar upp var staðið.  Slóvenar verða reyndar seint sakaður um gefast upp baráttulaust og lokamínúturnar voru ansi spennandi.  Primoz Prost tók sér stöðu milli stanganna hjá þeim og varði nokkrum sinnum frábærlega og þegar ein mínúta var til leiksloka var munurinn eitt mark, 28-27 fyrir Makedóna.  Slóvenar áttu síðustu sóknina og síðasta marktækifærið, nokkrum sekúndum fyrir leikslok sveif Sebastian Skube inn úr horninu í úrvalsfæri, en Ristovski varði og tryggði þar með makedónskan sigur, 28-27.

Með sigrinum í dag tryggðu Makedónar sér fimmta sætið á EM, sæti í forkeppninni fyrir Ólympíuleikana og líklega komu fáir jafnmikið á óvart með ágætum leik og góðum árangri í Serbíu og einmitt þeir.  Makedónar unnu fjóra af sjö leikjum sínum og sýndu oft á tíðum ágæta tilburði.  Slóvenar hljóta að fagna sjötta sætinu og árangur þeirra sýnir það og sannar að dýrmætt er á stórmótum sem þessu að vinna "réttu" leikina.  Slóvenar unnu tvo af sjö leikjum sínum og töpuðu fimm.  Til samanburðar má geta þess að íslenska liðið, sem hafnaði í tíunda sæti, vann tvo leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur.  Fari svo að Serbar standi uppi sem sigurvegarar á EM dugar sjötta sætið Slóvenum til að tryggja sér sæti í forkeppni Ólympíuleikanna og það verður að teljast ágæt nýting á tveimur sigurleikjum.

Mörk Makedóníu: Kiril Lazarov 8, Stojanche Stoilov 6, Stevche Alushovski 4, Vladimir Temelkov 3, Filip Mirkulovski 3, Naumche Mojsovski 2, Vancho Dimovski 1, Filip Lazarov 1.
Varin skot: Borko Ristovski 11.
Mörk Slóveníu: Jure Dolenec 7, Luka Zvizej 6, Matijaz Brumen 4, Uros Zorman 4, Dragan Gajic 4, Jure Dobelsek 1, David Spiler 1.
Varin skot: Gorazd Skof 12, Primoz Prost 6.