Serbar höfðu betur gegn fornum fjendum sínum Króötum í undanúrslitum EM í handknattleik á heimavelli í dag, 26-22, og mæta Dönum í úrslitaleik á sunnudag. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku Serbar völdin í síðari hálfleik og geta að stórum hluta þakkað sigurinn markverði sínum Darko Stanic, sem hreinlega lokaði markinu á köflum í síðari hálfleik.
Serbía 26-22 Króatía (13-14)

Það er eiginlega ekki hægt annað en að byrja á því að taka hattinn ofan fyrir handknattleiksmönnunum frá Króatíu sem skokkkuðu fram og tilbaka á gulu gólfinu í Belgrad Arena í dag. Móttökurnar voru af dýrari gerðinni og síður en svo til að hvetja þá til dáða, tæplega fimmtán þúsund argandi, gargandi, syngjandi og trallandi stuðningsmenn heimaliðsins lögðu lóð sín á vogarskálarnar, en virtust hafa meiri áhrif á opinmynnta og furðu lostna fréttamenn norðan úr Atlantshafi en leikmenn króatíska landsliðsins. Leikurinn spilaðist meira og minna eins og við var að búast, barátta og barningur úti um allan völl, enginn afsláttur í návígjum og jafnræði með liðunum. Vörn beggja var ágæt, markvarslan reyndar af skornum skammti þótt hún hafi verið hótinu betri hjá Serbum og seint verður sóknarleikurinn klipptur til og gefinn út sem kennsluefni. Króatar náðu fljótlega undirtökunum í leiknum, án þess þó að hafa einhverja yfirburði. Þeir virtust þó á löngum köflum þurfa minna að hafa fyrir mörkunum sínum og sóknarleikurinn þeirra varð árangursríkari eftir að Ivano Balic skeiðaði til vallar þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Balic byrjaði reyndar rólega, en svo tók hann til við að stýra og stjórna eins og honum einum er lagið. Hinum megin var hornamaðurinn Ivan Nikcevic áberandi, en sá ljóður var þó á leik þessa ágæta manns að hann fagnaði mörkunum sínum gjarnan einum of innilega og bauð Króötunum þannig upp á yfirtölu í hröðum sóknum. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu Króatar eins marks forystu, 14-13, og sviðið var tilbúið fyrir hádramatískan síðari hálfleik.
Serbar hófu síðari hálfleikinn af mikilli ákefð, skoruðu þrjú fyrstu mörkin í hálfleiknum og komust yfir 16-14. Planið hefur væntanlega verið á þann veg að eyða púðri í það að keyra upp forystu í einum grænum, því staðreyndin er sú að breiddin í leikmannahópi heimamann stenst ekki samanburð við Króatana. Það geta ekki mörg lið stært sig af því að kalla kappa á borð við Ivano Balic og Denis Buntic inn af bekknum. Darko Stanic tók sér stöðu milli stanganna hjá Serbum að nýju í upphafi síðari hálfleiks, hann hóf reyndar leikinn en settist fljótlega á bekkinn eftir sneypuför og eitt varið skot. Stanic varði nokkrum sinnum vel í upphafi síðari hálfleiks og virtist fylla Króatana vantrú og ótta, en á sama tíma var markvarsla Mirko Alilovic hjá Króötum nákvæmlega engin. Þegar ellefu mínútur voru liðnar af hálfleiknum náðu Serbar þriggja marka forystu, 19-16, Stanic varði og varði og stuðningsmennirnir voru um það bil að tryllast af fögnuði. Þetta var svo miklu meira en handboltaleikur, þetta var barátta tveggja þjóða sem löngum hafa eldað grátt silfur saman og lítilmagninn vann gæðamuninn upp á hreinni stemmningu. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður var forysta Serba orðin fjögur mörk, 21-17, og bæði leikmenn og áhorfendur fögnuðu hverju einasta marki eins og það hefði tryggt flata launahækkun á alla þegna ríkisins. Króatar gerðu heiðarlega tilraun til að koma sér inn í leikinn, náðu að minnka muninn í tvö mörk, en liðu fyrir það að markvarslan var hreinlega ekki boðleg. Alilovic kom í markið aftur eftir að Venio Losert hafði gert í brækurnar, en það hafði lítil áhrif. Serbar efldust, sérstaklega í vörninni, þegar þeir fundu þefinn af sigrinum og í fyrsta skipti í langan tíma leit sóknarleikur Króata út fyrir að vera handahófskenndur og árangurslítill. Það var og vatn á myllu Serba að það fáa sem lak í gegnum vörnina varði Stanic eins og vindurinn. Veselin Vukovic, þjálfari Serba, var gagnrýndur talsvert fyrir að hvíla lykilmenn í tapleiknum gegn Makedónum í riðlakeppninni, úrslitin í þeim leik skipti Serba litlu, en það kom berlega í ljós í þessum leik að þessi ákvörðun þjálfarans var hárrétt. Serbar áttu nóg eftir á tönkunum til að klára leik sem fór langleiðina með að klára þá bæði andlega og líkamlega. Króatar geta reyndar sjálfum sér um kennt, sóknarleikurinn þeirra brást og þeir komust ekki yfir þröskuldinn í markinu, hetju heimamanna Marko Stanic. Hann lagði grunninn að sanngjörnum serbneskum sigri, 26-22.
Mörk Serbíu: Momir Ilic 8, Marko Vujin 6, Ivan Nikcevic 4, Alem Toskic 3, Ivan Stankovic 3, Nikola Manojlovic 1, Rajko Prodanovic 1.
Varin skot: Darko Stanic 12.
Mörk Króatíu: Marko Kopljar 7, Igor Vori 4, Blazenko Lackovic 3, Ivan Cupic 3, Ivano Balic 2, Zlatko Horvat 1, Denis Buntic 1, Ivan Nincevic 1.
Varin skot: Mirko Alilovic 10.
Myndir: Hilmar Þór.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook