Danski hornamaðurinn Lars Christiansen ætlar ekki að gefa kost á sér áfram í danska landsliðið í handknattleik eftir Ólympíuleikana í London í sumar, komist liðið þangað. Christiansen er leikreyndasti leikmaður danska landsliðsins en hann á að baki 336 landsleiki. Hann er einnig markahæstur hjá liðinu en hann hefur skorað 1500 mörk í dönsku landsliðstreyjunni.
Christiansen, sem verður fertugur á árinu, leikur með Kolding í Danmörku en lék lengi sem atvinnumaður í Þýskalandi með Flensburg.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook