Laugardagur, 28. janúar 2012 | Fréttir | frettir@sport.is

EM 2012 | Ivano Balic: Ég vil óska Sesum góðs bata

Mynd: NordicPhotos

Króatíska handboltastjarnan Ivano Balic stóð við hliðina á Zarko Sesum, leikmanni Serbíu, í gær er mynt var kastað í auga hans, en nú telst það víst að um smámynt var að ræða. Serbneski áhorfandinn sem kastaði myntinni ætlaði að hitta Balic en það fór ekki betur en svo að hún hafnaði í auga Zarko Sesum sem verður ekki með á morgun í úrslitaleik mótsins er heimamenn taka á móti Dönum.

"Þetta er langt yfir mörkum og ég veit ekki hvað er að í höfðinu á þessari manneskju sem gerði þetta," sagði Michael Sahl Hansen, frá danska handknattleikssambandinu við danska fjölmiðla.

"Ég vissi ekki hvað var að gerast þegar ég heyrði Sesum, sem stóð við hliðina á okkur , öskra og öskra," sagði Ivano Balic sem segir þetta vera skelfilegt og grafalvarlegt atvik. "Þetta á ekki að gerast og er mjög alvarlegt. Ég vil óska Sesum góðs bata."

Tengdar fréttir:
EM 2012 | Læknir Serba: Sesum verður að hvíla á morgun
EM 2012 | Hneyksli: Žarko Šešum fékk mögulega pílu í augað