Laugardagur, 28. janúar 2012 | Fréttir | frettir@sport.is

EM 2012 | Læknir Serba: Sesum verður að hvíla á morgun

Zarko Sesum

Mynd: novosti.rs

Heimamenn, sem hafa farið á kostum á EM Serbíu mæta Danmörku í úrslitaleik keppninnar á morgun klukkan 16:00. Einn af lykileikmönnum Serba, Zarko Sesum fékk einhvern hlut, smáminnt, pílu eða plastflöksu, er erlendir fjölmiðlar greina frá, í augað í gær í undanúrslitaleik Serba og Króata. Óvissa ríkir um þátttöku Sesum í úrslitaleiknum á morgun en líklegra telst að hann muni ekki spila, í besta falli yrði hann á bekknum.

"Zarko hlaut mar á auga og er mjög bólginn. Það eru rispur á hornhimnunni og meðferð mun halda áfram næstu 2-3 daga á sjúkrahúsi. Zarko verður að hvíla sig á morgun, en verður félögum sínum að minnskta kosti til stuðnings í Berlgrad Arena," sagði Milan Babic, einn úr læknateymi serbneska landsliðsins, en óvíst er hvort Sesum muni hita upp með félögum sínum á morgun eða hvort hann muni einungis vera á bekknum titlaður sem starfsmaður.

Allir leikmenn og starfsmenn Serbíu heimsóttu Sesum á sjúkrahúsið í dag og óskuðu honum góðs bata. Ekki eru taldar miklar líkur á því að Sesum muni missa sjón á öðru auganu, sem er jákvætt.

Sesum mun á næstu dögum gangast undir rannsóknir á auga og er undir eftirliti lækna.