Laugardagur, 28. janúar 2012 | Steingrímur Gústafsson | steingrimur@sport.is

EM 2012 | Lasergeisla beint í augun á markverði Króatíu í gær | Myndband

Venio Losert

Venio Losert

Mikið gekk á í síðari undanúrslitaleik gærdagsins en stuðningsmenn Serba létu öllum illum látum og gerðu m.a. tilraun til þess að hitta Ivano Balic, leikmann Króatíu með pílu, en það heppnaðist ekki betur en svo að hún endaði í auga leikmanni Serba, Zarko Sesum sem er nú á sjúkrahúsi en óvissa ríkir um þátttöku hans í úrslitaleiknum á morgun er heimamenn mæta Dönum. Óttast er að Sesum, sem leikur með Löwen í Þýskalandi hafi misst sjón á öðru augu.

Þetta er skammarlegt atvik og handknattleikssamband Serbíu verður að öllum líkindum sektað vegna þessa. Þetta var ekki það eina sem gerðist í leiknum í gær, svo langt í frá en ljótt atvik átti sér stað er ein helsta stjarna heimamanna Momir Ilic var að taka vítakast. Þá tók einn stuðningsmanna Serbíu sig til að beindi stórum grænum lasergeisla beint í augun á markverði Króatíu, Venio Losert. Eins og gefur að skilja er það mjög truflandi að fá leisergeisla í augun og í raun stórhættulegt. Ilic skoraði úr vítinu en sjá má þetta atvik á síðu norska sjónvarpsins TV2 með því að smella hér.