Laugardagur, 21. janúar 2012 | Guðmundur Egill Gunnarsson | gudmundur@sport.is

EM 2012 | Danir unnu Makedóna með marki á lokasekúndunni | Myndir

Mynd: NordicPhotos

Danir unnu magnaðan 33-32 sigur á Makedónum í milliriðli 1 á Evrópumótinu í Serbíu nú rétt í þessu. Hinn íslensk ættaði Hans Óttar Lindberg skoraði sigurmarkið úr hraðaupphlaupi á lokasekúndu leiksins eftir að Niklas Landin hafði varið skot Kiril Lazarov fimm sekúndum fyrir leikslok.

Danmörk 33 – 32 Makedónía (16-19)

Makedónar byrjuðu leikinn í dag af miklum krafti og áttu Danir talsvert undir högg að sækja í fyrri hálfleiknum. Jafnræði var með liðunum fyrstu fimmtán mínútur leiksins allt þangað til í stöðunni 9-9. Þá settu Makedónar í hæsta gír og náðu fimm marka forystu 10-15 þegar rétt um níu mínútur lifðu fyrri hálfleiks. Dönum tókst að minnka bilið niður í þrjú mörk skömmu áður en flautað var til hálfleiks.

Danir byrjuðu síðari hálfleikinn vel og tókst að jafna leikinn 23-23 þegar um þrettán mínútur voru búnar. Mikkel Hansen, sem hefur lítið látið fyrir sér fara á mótinu til þessa, hrökk í svakalegan gír og skoraði hvert markið á fætur öðru fyrir Dani sem náðu tveggja marka forystu þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Danir héldu því forskoti allt þangað til þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Þá skoruðu Makedónar tvö mörk í röð og tókst að jafna 32-32. Danir gerðu svo mistók í sókninni sem varð til þess að Makedónar fengu boltann þegar rúm ein mínúta lifði leiks. Þeir spiluðu mjög langa sókn sem endaði með því að Kiril Lazarov tók skot sem Niklas Landin varði í markinu þegar fimm sekúndur voru eftir. Danir komu boltanum fram á Hans Óttar Lindberg sem skoraði sigurmarkið í þann mund sem leiktíminn rann út. Danir fögnuðu gríðarlega og eru þeir nú komnir með sín fyrstu tvö stig í milliriðlinum. Mikkel Hansen fór á kostum í liði Dana og skoraði 12 mörk í leiknum en Kiril Lazarov, leikmaður Makedóníu, sló honum við og gerði 13 mörk.

Mörk Danmerkur: Hansen 12, Lindberg 8, Spellerberg 5, Lauge 3, Toft Hansen 2, Christiansen 2, Sondergaard Sarup 1.
Varin skot: Landin 10, Cleverly 1.

Mörk Makedóníu: K. Lazarov 13, Stoilov 7, Alushkovski 4, Mojskovski 3, F. Lazarov 2, Temelkov 1, Mirkulovski 1, Markoski 1.
Varin skot: Ristovski 11.

Myndir: NordicPhotos