Þriðjudagur, 31. janúar 2012 | Fréttir | frettir@sport.is

EM 2012 | L’Equipe: Mikkel Hansen bestur – Karabatic mestu vonbrigðin

Mynd: Hilmar Þór.

Stærsta íþróttablað Frakklands, L’Equipe, hlífir ekki beint franska landsliðsmanninum Nikola Karabatic sem átti eins og fleiri leikmenn Frakka afleitt mót á EM á Serbíu. Blaðið hefur nefnilega tilkynnt um þá leikmenn sem léku best og um þá sem léku langt undir væntingum.

Mikkel Hansen fékk enn eina rósina í hnappagatið fyrir frammistöðu sína á mótinu en blaðið velur hann besta leikmann mótsins. Auk þess velur blaðið markvörð Serba Darko Stanic og markahæsta leikmann mótsins Makedóníumanninn Kiril Lazarov í hóp þriggja bestu leikmanna ásamt Hansen.

Á listanum yfir þá leikmenn sem ollu mestum vonbrigðum og þóttu spila undir væntingum er Frakkinn Nikola Karabatic sem af flestum hefur verið talinn besti leikmaður heims undanfarin ár. Þá er Króatinn Ivano Balic einnig á listanum en hann spilaði ekki mikið en þótti valda vonbrigðum. Þá vekur talsverða athygli að tékkneska stórskyttan Filip Jicha er einnig á listanum en hann lék vel fyrir Tékka sem þó mistókst að komast í milliriðla keppninnar.

Nikola Karabatic var talinn hafa valdið mestum vonbrigðum og er hann gagnrýndur harðlega í blaðinu en hann skoraði einungis níu mörk á öllu mótinu sem verður að teljast fyrir neðan allar hellur.