Þriðjudagur, 31. janúar 2012 | Fréttir | frettir@sport.is

EM 2012 | Ulrik Wilbek hættir eftir EM í Danmörku 2014

Mynd: Nordic Photos

EM-gullið fær Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfara Dana í handknattleik ekki til þess að breyta skoðun sinni að hætta með danska landsliðið eftir Evrópumeistaramótið í Danmörki 2014.

Ulrik Wilbek hafði þegar tilkynnt um að EM 2014 yrði seinsta mótið sem hann stjórnaði danska landsliðinu, en það gerði hann við undirritun nýs samning árið 2010.

DR íþróttaveitan spurði Wilbek hvort gullið á EM í Serbíu myndi ekki breyta ákvörðun hans.

"Nei það mun ég ekki gera. EM í Danmörku verður mitt síðasta stórmót," sagði Wilbek.

Ulrik Wilbek hefur ekki ákveðið hvað hann mun taka sér fyrir hendur er hann hættir með landsliðið, en DHF, danska handknattleikssambandið hefur boðið honum góða lausn.

"DHF hefur talað við um að vinna sem íþróttastjóri sambandsins, og það er í skoðun hjá mér," sagði einn sigursælasti þjáfari allra tíma, en undir hans stjórn hefur danska karla- og kvennalandsliðið unnið samtals til 11 verðlauna á stórmótum, sex verðlaun hjá kvennalandsliðinu og fimm hjá karlalandsliðinu.

Tengdar fréttir:
EM 2012 | Verðlaunasafn Ulrik Wilbek er hér