Ensku úrvalsdeildarfélögin Tottenham og Everton eru komin í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar eftir sigra á andstæðingum sínum í kvöld. Tottenham vann 1-0 útisigur á B-deildarliði Watford þar sem Hollendingurinn Rafael van der Vaart skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik eftir mistök Scott Loach markvarðar Watford.
Everton vann 2-1 sigur á Fulham en gestirnir komust yfir á 14.mínútu með marki Danny Murphy úr vítaspyrnu sem dæmd var á Johnny Heitinga fyrir að handleika knöttinn innan teigs. Everton jafnaði leikinn þrettán mínútum seinna þegar Denis Stracqualursi jafnaði metinn með skalla eftir fyrirgjöf Landon Donovan. Bandaríkjamaðurinn var svo aftur á ferðinni í síðari hálfleik þegar hann lagði upp skallamark fyrir Belgan, Maroune Fellaini, þegar hann gaf góða sendingu fyrir markið. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og því er ljóst að Everton og Tottenham eru fyrsti liðin til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.
Myndir: NordicPhotos




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook