Laugardagur, 28. janúar 2012 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is

Enski bikarinn | Brighton sló Newcastle úr leik

Mynd: Nordic Photos

Brighton & Hove Albion tók á móti úrvalsdeildarliði Newcastle í síðasta leik dagsins í ensku bikarkeppninni. Flestir bjuggust fyrirfram við auðveldum leik að hálfu Newcastle enda eru þeir í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hafa spilað einstaklega vel það sem af er leiktímabili. Brighton er hinsvegar í næst efstu deild Englands og sitja þar í 10. sæti. Annað kom á daginn og martröð Newcastle varð að veruleika þegar að dómari leiksins flautaði til leiksloka. Lokatölur voru 1-0 fyrir Brighton.

Það er heldur betur þrekvirki sem að Gus Poyet, knattspyrnustjóri Brighton, hefur unnið á síðustu árum. Brighton kom upp ú 2. deildinni í vor og er nú komið 16 liða úrslit FA bikarsins. Eina mark leiksins var sjálfsmark sem kom frá varnarmanninum Mike Williamson. Markið kom á 76. mínútu og réði úrslitum. Brighton voru vel skipulaggðir varnarlega og virkuðu Newcastle hálf bitlausir allan leikinn.

Brighton 1-0 Newcastle
1-0 Williamson 76. mín (sjálfsm.)