
Níu leikir voru á dagskrá í 32 liða úrslitum FA bikarkeppninnar í Englandi klukkan 15.00. Gylfi Sigurðsson og félagar í Swansea fóru í heimsókn til Grétars Rafn Steinssonar og félaga í Bolton. Hvorugur leikmaðurinn var þó í byrjunarliði sinna liða. Leiknum lauk með 2-1 sigri Bolton og fara þeir því áfram í 16 liða úrslitin. Swansea komst yfir í leiknum en Bolton skoraði síðan tvö síðustu mörk leiksins. Það var mark Chris Eagles sem að tryggði þeim farseðilinn í 16 liða úrslitin.
Blackpool og Sheffield Wednesday gerðu 1-1 jafntefli. Það var gamla brýnið Kevin Philips sem að jafnaði fyrir Blackpool í uppbótartíma. Reglurnar í FA bikarkeppninni eru þannig að ef leikur fer jafntefli þá verða liðin að mætast aftur á heimavelli þess liðs sem lék á útivelli í fyrri leiknum. Þannig að Blackpool og Sheffield Wednesday munu mætast aftur
Crawley Town, sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi slóu út Hull sem að spila í næst efstu deild. Það var Matt Tubbs sem að tryggði liði sínu farseðilinn í 16 liða úrslitinn með marki sem hann skoraði á 57. mínútu leiksins. Lokatölur 1-0. Þá sló Stevenage, sem einnig leikur í 4. deild lið Notts County úr leik.
Adam Rooney skoraði tvívegis fyrir Birmingham í 4-0 sigri liðsins á Sheffield United. Adam Rooney er þó ekki skyldur Wayne Rooney, leikmanni Manchester United. Norwich og West Bromwich Albion mættust svo í úrvalsdeildarslag þar sem að Norwich fór með 2-1 sigur að hólmi. Þá slóu lærisveinar Tony Pulis í Stoke City, Derby County úr leik. Leiknum lauk með 2-0 sigri Stoke og voru það Robert Huth og Cameron Jerome sem að skoruðu mörk Stoke, í sitt hvorum hálfleiknum.
Fyrr í dag höfðu Liverpool og Chelsea tryggt sig áfram í keppninni. Chelsea sigraði QPR og Liverpool lagði erkifjendur sína í Manchester United að velli.
Einum leik er ólokið í dag en það er viðureign Newcastle United og Brighton. Hefst hann klukkan 17. 15
Úrslit dagsins:
Derby County 0-2 Stoke City
0-1 Jerome 5. mín
0-2 Huth 81. mín
Blackpool 1-1 Sheffield Wednesday
0-1 Morrison 52. mín
1-1 Philips (VSP) 90. mín
Bolton 2-1 Swansea
0-1 Moore 43. mín
1-1 Pratley 45. mín
2-1 Eagles 56. mín
Hull 0-1 Crawley
0-1 Tubbs 57. mín
Leicester 2-0 Swindon
1-0 Beckford 5. mín
2-0 Beckford 53. mín
Millwall 1-1 Southampton
0-1 Lambert 31. mín
1-1 Henderson 86. mín
Sheffield United 0-4 Birmingham
0-1 Redmond 18. mín
0-2 Rooney 38. mín
0-3 Elliot 58. mín
0-4 Rooney 78. mín
Stevenage 1-0 Notts County
1-0 Stewart (sjálfsm.) 12. mín
WBA 1-2 Norwich
0-1 Holt 35. mín
1-1 Fortuné 54. mín
1-2 Jackson 85. mín


Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook