Tveir leikir eru á dagskrá í dag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wolves tekur á móti West Bromwich Albion í fyrri leik dagsins en Aston Villa og Manchester City mætast á Villa Park í þeim síðari. City getur með sigri eða jafntefli í dag endurheimt toppsæti deildarinnar. Liðið er í öðru sæti með 57 stig, stigi á eftir Manchester United sem vermir toppsætið með 58 stig eftir sigurinn gegn Liverpool í gær.
Kl. 13:30 Wolves (17)-WBA (15) | Beint á Stöð 2 Sport HD
Bæði liðin eru við fallsvæðið og því mikilvæg stig í boði á Molineux Stadium vellinum í dag. Úlfarnir lögðu QPR að velli, 2-1, á útivelli í síðasta leik og var það fyrsti sigur liðsins í tíu leikjum í röð. WBA hefur verið að þokast niður töfluna en liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu sjö, tapað fjórum og gert tvö jafntefli. Í síðustu umferð tapaði WBA gegn Swansea, 1-2, á heimavelli. Liðin hafa mæst þrisvar í úrvalsdeildinni frá og með maí 2011 og unnið sitthvorn leikinn og gert eitt jafntefli. Liðin hafa hins vegar mæst reglulega í ensku b-deildinni síðustu ár. Þar hefur WBA betra vinningshlutfall; unnið fjóra af sex en Úlfarnir einu sinni. Þegar liðin mættust á þessum velli í maí í fyrra höfðu Úlfarnir betur, 3-1. Steven Fletcher skoraði eitt marka Wolves í leiknum og Adlene Guedioura tvívegis en Peter Odemwingie skoraði mark WBA. Er liðin áttust við á heimavelli West Bromwich Albion í haust höfðu heimamenn betur, 2-0. Michael Kightly, Jody Craddock og Ronald Zubar eru frá vegna meiðsla í liði Wolves en hjá WBA eru þeir Chris Brunt, Zoltan Gera, Shane Long og Graham Dorrans á sjúkralista.
Kl. 16:00 Aston Villa (13)-Manchester City (1) | Beint á Stöð 2 Sport 2 HD
Manchester City lagði Fulham örugglega að velli í síðustu umferð, 3-0, og voru fljótir að hrista af sér óvænt tap gegn Everton, 0-1, í leiknum þar á undan. Gengi Aston Villa í síðustu þremur leikjum hefur verið misjafnt. Villa tapaði gegn Newcastle, 1-2, í síðustu umferð, gerði 2-2 jafntefli við QPR þar á undan og vann Wolves, 3-2. Þegar Villa og City mættust í haust á heimavelli City höfðu heimamenn betur, 4-1. Villa vann hins vegar 1-0 er liðin mættust á Villa Park í janúar í fyrra með marki frá Darren Bent. City hefur ekki unnið Villa á útivelli síðan í nóvember 2006, en Villa hefur unnið tvisvar og tvisvar hafa liðin skilið jöfn í síðustu fjórum leikjum á Villa Park. City hefur hins vegar unnið síðustu tvær viðureignir liðanna, sem báðar hafa farið fram á heimavelli City, með markatölunni samtals, 7-1. Fjórir leikmenn Aston Villa eru að stíga upp úr meiðslum og gætu spilað í dag, þeir Gabriel Agbonlahor, Stephen Ireland, Marc Albrighton og Chris Herd en James Collins verður klár í lok mánaðarins. Hjá Manchester City eru þeir Vincent Kompany og Samir Nasri að jafna sig á meiðslum en talið er ólíklegt að þeir verði með í dag.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook