Sunnudagur, 12. febrúar 2012 | Guðmundur Egill Gunnarsson | gudmundur@sport.is

Enski boltinn | Leikmannasamtökin gætu þurft að skerast í leikinn

Mynd: NordicPhotos

Formaður samtaka enskra knattspyrnumanna, Clarke Carlisle, segir að það sé mikilvægt að Patrice Evra og Luis Suarez verði hjálpað að leysa sín ágreiningsmál en allt fór í háaloft í leik Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Þeir mættust í fyrsta skipti í gær frá því Evra sakaði Suarez um kynþáttafordóma eftir leik liðanna á Anfield í október á síðasta ári. Eftirmálar þess urðu þeir að Suarez var dæmdur í átta leikja keppnisbann. Kapparnir tókust ekki í hendur fyrir leik liðanna á Old Trafford í gær og skapaðist nokkur uppákoma í kjölfarið.

"Það hafa margar tilraunir verið gerðar til að fá þessa tvo leikmenn til að koma saman og reyna að grafa stríðsöxina. Það gekk hins vegar ekki eftir en eftir atvik helgarinnar geri ég ráð fyrir að enn frekar verði reynt að fá þá til að funda saman." sagði Carlisle við enska fjölmiðla eftir leik liðanna í gær.

Þetta er ekki fyrsta atvikið sem kemur upp þegar leikmenn liðanna takast í hendur fyrir leik en árið 2010 neitaði Wayne Bridge að taka í höndina á John Terry, fyrrum liðsfélaga sínum, eftir að hann hafði átt í ástarsambandi við fyrrum eiginkonu hans.