Sunnudagur, 12. febrúar 2012 | Þröstur Ernir Viðarsson | throstur@sport.is

Enski boltinn | Suarez biðst afsökunar

Evra reyndi að taka í höndina á Suarez í gær en án árangurs.

Úrúgvæinn Luis Suarez, leikmaður Liverpool, hefur beðist afsökunar á hegðun sinni í gær fyrir leik liðsins gegn Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Suarez vildi ekki taka í höndina á Patrice Evra, fyrirliða United, en Úrúgvæinn hefur nýlokið átta leikja keppnisbanni fyrir kynþáttaníð gagnvart Evra í leik liðanna fyrr í vetur.

Eftir að hafa rætt við stjóra minn (Kenny Dalglish) hef ég gert mér grein fyrir því að þetta var rangt sem ég gerði. Ég hef ekki einungis brugðist honum, heldur félaginu öllu og fyrir það sem það stendur. Ég biðst afsökunar. Ég gerði mistök og sé eftir því sem gerðist. Ég hefði átt að taka í hönd Evra og biðjast afsökunar. Ég vil að þessu máli fari að ljúka svo ég geti farið að einbeita mér að því að spila fótbolta,“ sagði Suarez í viðtali sem birtist á heimasíðu Liverpool.

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, sagði í gær að Suarez væri Liverpool til skammar og Rio Ferdinand, leikmaður United, lét hafa eftir sér í dag að hann hafi misst alla virðingu fyrir leikmanninum.