West Browich Albion skellti Wolves, 5-1, á útivelli í dag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Peter Odemwingie skoraði þrennu fyrir WBA og þeir Jonas Olsson og Keith Andrews sitt markið hver. Mark heimamanna skoraði Steven Fletcher. Eggert Gunnþór Jónsson sat allan tímann á varamannabekk Úlfanna.
Eftir sigurinn er WBA komið í fjórtánda sæti deildarinnar með 29 stig og slítur sig aðeins frá neðstu liðunum. Wolves hefur 21 stig í átjánda sæti, með jafnmörg stig og Blackburn og QPR, en vermir fallsæti með slökustu markatölu þessara þriggja liða.
Wolves 1-5 WBA (1-1)
0-1 Peter Odemwingie 35. mín.
1-1 Steven Fletcher 45. mín.
1-2 Jonas Olsson 65. mín.
1-3 Peter Odemwingie 78. mín.
1-4 Keith Andrews 85. mín.
1-5 Peter Odemwingie 88. mín.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook