Síðasti leikurinn í fyrstu umferð enska boltans fór fram á Goodison Park þegar Everton tók á móti Manchester United. Fyrri hálfleikur var markalaus en þar voru heimamenn mun sterkari. Stangarskot Fellaini og góð aukaspyrna Baines glöddu augað í fyrri hálfleik. Spil gestanna frá Manchester var marklaust og aumt, ekkert að gerast hjá liðinu.
Eina mark leiksins kom á 57.mínútu þegar Fellaini skoraði með fallegum skalla eftir hornspyrnu. Fellaini vann einvígi gegn Carrick og skoraði. Eftir markið sóttu United menn mun meira, Robin Van Persie kom meðal annars inn á en sást lítið. Það virtist sem heimamenn væru einfaldlega líkamlega sterkari og tilbúnari í leikinn en gestirnir. Lokaniðurstaðan sanngjarn sigur Everton gegn slöku Manchester United liði.
Everton 1-0 Manchester United
1-0 Fellaini 57.mín.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook