Sunnudagur, 3. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Enski boltinn | Gylfi frábær í 2-1 sigri Tottenham á Arsenal

Mynd: Nordic Photos

Gylfi Þór Sigurðsson átti stórgóðan leik í dag þegar Tottenham vann 2-1 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var jafn og spennandi en þegar upp var staðið voru það leikmenn Tottenham sem gátu fagnað en með sigrinum komst liðið í 3. sæti deildarinnar. Gylfi Þór Sigurðsson átti stoðsendinguna í fyrra marki leiksins en þá skoraði Gareth Bale en Gylfi var of óeigingjarn seinna í leiknum þegar hann komst í upplagt færi en hann reyndi að gefa boltann í stað þess að skjóta á markið og ekkert varð úr.

Tottenham 2-1 Arsenal (2-0)
1-0 Bale 37.mín.
2-0 Lennon 39.mín.
2-1 Mertesacker 51.mín.

Leikurinn byrjaði fjörlega en það voru gestirnir sem sóttu stíft á mark Tottenham frá fyrstu mínútu. Án þess þó að koma sér í dauðafæri en það kom í bakið á þeim á 37.mínútu  en þá gaf Gylfi Þór frábæra sendingu inn fyrir vörn Arsenal og Gareth Bale komst einn í gegn og skoraði hann örugglega. Frábær sending hjá Gylfa sem átti heilt yfir góðan leik enda lék hann aldrei þessu vant allan leikinn. Stuttu síðar gerðist nánast það sama en þá komst Aron Lennon einn í gegn eftir samskonar sendingu en hann lék á markmann Arsenal og skoraði. Fram að þessu hafði Arsenal verið betri aðilinn í leiknum en það er ekki spurt að því.

Á 51.mínútu leiksins minnkaði Arsenal muninn í 2-1 en þá skallaði Per Mertesacker boltann í allavega átt að marki eftir hornspyrnu. Boltinn kom eilítið við Bale og þaðan í markið. Eftir þetta skiptust liðin á að sækja en Gylfi Þór fékk eitt dauðafæri en hann fékk boltann inn fyrir vörn Arsenal en í stað þess að lúðra á markið þá reyndi hann að gefa á Bale sem var að koma í vítateiginn og varnarmaður Arsenal skóflaði knettinum í burtu.

Arsenal fékk sín færi til að jafna leikinn, þá sértaklega í uppbótartíma en það gekk ekki eftir og Tottenham vann góðan sigur sem skilaði liðinu í 3.sæti deildarinnar. André Villa-Boas er að gera góða hluti með Tottenham en ef fer sem horfir þá verður liðið í Meistaradeild Evrópu á komandi tímabili. En það er samt ennþá nóg eftir.