Einn leikur er á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar að Manchester City heimsækir Aston Villa til Birmingham. Leikið verður á Villa Park og þurfa bæði lið svo sannarlega á stigunum að halda.
Töluvert bil er þó á milli liðanna tveggja í deildinni en City er í 2. sæti, 15 stigum á eftir erkifjendum sínum í Manchester United og verða að vinna til þess að vera í seilingarfjarlægð við þá rauðklæddu. Villa er hinsvegar í 18. og fallsæti. Með sigri geta þeir náð 16. sætinu af Southampton og kvatt falldrauginn í bili.
Leikurinn hefst klukkan 20.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook