Mánudagur, 4. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Enski boltinn | Liverpool búið að skora fleiri mörk en City | Smá tölfræði

Mancini er með marga góða framherja á sínum snærum. Mynd: Nordic photos

Þegar flest lið í ensku úrvalsdeildinni eiga eftir að leika 10 leiki ákvað Sport.is aðeins að rýna í tölfræði liðanna, sérstaklega markaskorun og varnarleik. Það fyrsta sem vakti athygli undirritaðs var að lið Liverpool, sem situr í 7. sæti, er búið að skora þremur mörkum fleiri en Manchester City, liðið í 2. sæti. City á reyndar leik til góða gegn Aston Villa í kvöld. Það sem enn frekari athygli vekur er að Liverpool er hálf illa mannað af framherjum, ef frá er talinn Luis Suarez. Hjá City er hinsvegar hver stórstjarnan á fætur annari. Liverpool hefur skorað 53 mörk í vetur en það er það þriðja mesta í deildinni.

Manchester United hefur skorað langflest mörkin eða 68. Þar á eftir kemur Chelsea með 56 og síðan Liverpool og Arsenal með 53 mörk hvort lið. QPR hefur skorað fæst mörkin eða 21. Tvö lið koma síðan næst með 26 mörk hvort en það eru Aston Villa og síðan Stoke City! Stoke situr í 11. sæti deildarinnar og hálf ótrúlegt að lið sem nær ekki að skora 1 mark í leik að meðaltali sitji í 11. sæti.

Wigan, liðið í 17. sæti, hefur fengið flest mörk á sig eða 55. Manchester City hefur fengið fæst mörkin á sig eða 24. City er með +26 í markatölu en liðið í 3. sæti, tveimur stigum á eftir City, er Tottenham. Þeir eru aðeins með +16 í markatölu.