Enska félagið Chelsea segir það ekki rétt að það sé í viðræðum við Frank Lampard um að framlengja samning leikmannsins. Samningur Lampard rennur út í sumar en hann hefur verið á skotskónum að undanförnu og meðal betri leikmanna liðsins.
Hann vill sjálfur leika áfram með Chelsea en félög eins og Man.Utd hafa sögð hafa áhuga á að fá Lampard í sínar raðir. Þær fréttir sem komu í dag um að Chelsea færi að semja við hann eru ekki réttar en framkvæmdastjóri félagsins hefur sagt að það sem hann sagði á blaðamannafundi í morgun hafi verið mistúlkað.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook