Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is | @hilmartor á Twitter

Enski boltinn | Var Mourinho að stimpla sig inn á Trafford | Verður Rooney seldur?

Velkominn? Ferguson faðmar Mourinho í kvöld

Tvær skemmtilegar pælingar hafa skotið upp kollinum eftir leik Man.Utd og Real Madrid í kvöld. Ein þeirra er sú að Jose Mourinho hafi unnið sér inn u.þ.b. milljón stuðningsmannastig hjá stuðningsmönnum Man.Utd fyrir að segja að hans liðið hafi verið síst betra liðið og í raun hafi betra liðið tapað í kvöld. Mourinho hefur nefnilega verið orðaður við stjórastöðuna hjá liðinu.

Hann hefur reyndar sagt að það væri ólíklegt að hann myndi taka við stöðunni á næstunni þar sem hann sæi ekki að gamli maðurinn, Ferguson, væri eitthvað að fara að hætta. En það er vitað að Man.Utd hefur áhuga á að fá Mourinho til starfa eftir að Ferguson lætur af störfum og sumir vilja meina að hann hafi verið að stimpla sig rækilega inn sem eftirmann gamla mannsins með því að slá enska liðinu gullhömrum.

Það má svo sem ekki gleyma að Mourinho og Ferguson eru miklir vinir og hefur Ferguson hælt Portúgalanum mikið fyrir störf hans á Englandi og á Spáni. Hvort það megi túlka það sem meðmæli fyrir starfið á Old Trafford skal ósagt látið. Kannski var Mourinho bara að láta Ferguson líða aðeins betur eftir þetta stormasama kvöld. í það minnsta eru allar líkur á að þeir sitji núna saman, ræði málin og fái sér rándýrt rauðvín en báðir eru miklir áhugamenn um góð vín og eru rauðvín í sérstöku uppáhaldi hjá þeim báðum.

Þá fór sú saga á flug í kvöld að það væri ekki langt að líða að Wayne Rooney yrði seldur frá félaginu en Ferguson valdi Robin Van Persie í byrjunarliðið með Danny Welbeck en lét Rooney dúsa á bekknum. Þegar í óefni var komið setti hann Rooney inná en það skilaði ekki tilsettum markmiðum enda liðið manni og marki undir í leiknum. Málið er að Rooney á 2 ár eftir af samningi sínum og hann er þar að auki einn launahæsti leikmaður liðsins. Ef Man.Utd vill selja þennan 28 ára gamla sóknarmann þá þarf það að gerast á næstunni annars þarf að semja við hann uppá nýtt en talið er að Rooney vilji um 250-300 þúsund pund í vikulaun. Það er meira en Man.Utd er reiðubúið að borga.

Rooney var næstum búinn að ganga í raðir Man.City fyrir nokkrum árum en þá hefði hann hækkað snarlega í launum en því var afstýrt á seinustu stundu og hann hélt áfram hjá félaginu. Nú gæti verið komin upp ný staða þar sem Ferguson horfir til framtíðar og hann vill væntanlega finna framtíðarleikmenn sem toppa þegar leikmenn eins og Robin Van Persie fer að dala en kappinn er 29 ára gamall. Það er ekki líklegt að hann fari neitt á næstunni þar sem hann kom til félagsins fyrir tímabilið.

Tvær stórar spurningar sem engin veit svörin við. Verður Rooney áfram og mun Mourinho taka við Man.Utd. Það mun tíminn leiða í ljós.