Valmynd
Flokkar
3.07.2007 |
Ritstjórn |
ritstjorn@sport.is
FH-blaðið 2007
FH-blaðið 2007 er komið út. Þetta stórglæsilega blað er gefið út af Media Group ehf og er þetta þriðja árið í röð sem blaðið er gefið út á vegum FH og Media Group ehf. Blaðið er fullt af áhugaverðu efni en þar má til dæmis finan viðtöl við leikmenn, þjálfara og forsvarsmenn FH. Mæja í Bæjarins bestu er kölluð meistaraflokks-mamman, Mafían segir sitt álit á hlutunum og margt fleira. Blaðinu var dreift á leik FH og Víkings en einnig var blaðinu dreift á þjónustustaði í Hafnarfirði.
Smellið hérna til að skoða blaðið í PDF-formi.
Laugardagur, 23. júní 2007
Grindavíkurblaðið 2007
Media Group ehf hefur í samstarfi við knattspyrnufélag Grindavíkur gefið út Grindavíkurblaðið 2007. Blaðið er stútfullt af efni um knattspyrnuna í Grindavík og forsíðuna prýðir að þessu sinni Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf sem hefur leikið með Grindavík í mörg ár. Efnistökin eru fjölbreytt en þar má meðal annars finna viðtöl við leikmenn og þjálfara, formannspjall, Guðmundur í Brim segir frá því þegar hann var valinn leikmaður ársins, Drauma Jolli segir frá fallinu og upprisunni, rætt er við efnilega leikmenn og margt annað. Blaðinu var dreift á leik Grindavík og Þróttar en því verður einnig dreift hús í hús í Grindavík.
Smellið hérna til að sjá blaðið á PDF formi.
Föstudagur, 15. júní 2007
KR-blaðið 2007
KR-blaðið 2007 er komið út. Blaðið er fullt af skemmtilegu lesefni þar sem þjálfarar, fyrirliðar, stuðningsmenn og aðrir tengdir félagi ræða um liðið og gengi þess innan vallar sem utan. Blaðinu var dreift á leik KR og FH í Landsbankadeildinni en einnig má finna blaðið á sölu og þjónustustöðum víðsvegar í Vesturbænum. Blaðið var unnið af Media Group ehf sem á meðal annars Sport.is og er þetta fjórða árið sem blaðið kemur út í núverandi mynd.
Smellið hérna til að skoða blaðið á PDF formi.
Fimmtudagur, 20. júlí 2006
FH-blaðið 2006
FH-blaðið 2006 er komið út og er blaðið hið glæsilegasta. Blaðið er unnið af útgáfufyrirtækinu Media Group ehf og er þetta í annað árið í röð sem fyrirtækið vinnur blað fyrir Íslandsmeistara FH. Blaðið er uppfullt af efni en meðal annars má finna fjölmörg viðtöl, flottar myndir og annað efni. Blaðið var dreift í Hanfarfirði en það má lesa það í heild sinni með því að smella hér.
Fimmtudagur, 20. júlí 2006
KR blaðið 2006
KR-blaðið 2006 er komið út og er blaðið hið glæsilegasta. Blaðið er unnið af útgáfufyrirtækinu Media Group ehf og er þetta í annað árið í röð sem fyrirtækið vinnur blað fyrir knattspyrnudeild KR. Blaðið er uppfullt af efni en meðal annars má finna fjölmörg viðtöl, flottar myndir og annað efni. Blaðið var dreift í Vesturbænum og á stórleik KR og ÍA en það má lesa það í heild sinni með því að smella hér.
Miðvikudagur, 19. júlí 2006
Grindavíkurblaðið 2006
Grindavíkurblaðið 2006 er komið út og er blaðið hið glæsilegasta. Blaðið er unnið af útgáfufyrirtækinu Media Group ehf og er þetta í annað árið í röð sem fyrirtækið vinnur blað fyrir knattspyrnudeild Grindavíkur. Blaðið er uppfullt af efni en meðal annars má finna fjölmörg viðtöl, flottar myndir og annað efni. Blaðið var dreift í Grindavík en það má lesa það í heild sinni með því að smella hér.
Sunnudagur, 26. mars 2006
Valsblaðið Klístur
Valsblaðið Klístur er komið út. Þetta er blað sem Media Group ehf vann fyrir Val og er blaðið 28 síður og allt hið glæsilegasta. Meðal efnis í blaðinu eru fjölmörg viðtöl við leikmenn og aðstandendur handknattleiksdeildar Vals. Blaðið er ríkulega myndskreytt og er plakat í miðopnu þess. Blaðinu var dreift á leikjum Vals þann 25. mars en blaðinu er einnig dreift í hús á Vals-svæðinu.
Smellið hérna til að skoða blaðið í PDF formi.
Föstudagur, 23. desember 2005
Hauka-blaðið 2005
Hauka-blaðið 2005 er komið út. Blaðið er unnið af Media Group ehf fyrir handknattleiksdeild Hauka og er ritið allt hið glæsilegasta. Blaðið er fullt af fróðlegu efni og eru mörg skemmtileg viðtöl í blaðinu en margar myndir prýða einnig síður blaðsins. Meðal efnis eru viðtöl við Hörpu Melsteð, formaðurinn ræðir um daginn og veginn, flugmaðurinn í markinu er tekinn tali, Birkir Ívar ræðir um stöðu mála og plakat er í blaðinu ásamt mörgu öðru. Blaðinu var dreift á þjónustustaði í Hafnarfirði sem og á stórleik Hauka og FH að Ásvöllum.
Smellið hérna til að skoða blaðið í PDF formi.
Sunnudagur, 7. ágúst 2005
FH-blaðið 2005
FH-blaðið 2005 kom í kvöld á leik FH og KR. Blaðið er hið glæsilegasta, 40 síður og stútfullt af efni. Meðal efnis eru viðtöl við Emil Hallfreðsson hjá Tottenham, Arnar Þór Viðarsson hjá Lokeren, Pétur Stephensen framkvæmdastjóri er tekinn tali, Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra spjallar um FH, Halli í Mafíunni segir sitt álit á hlutunum, Heimir Guðjónsson talar um ferilinn og Hörður Magnússon hefur sína skoðanir á málunum. Þetta er aðeins hluti af efni blaðsins en hægt er að skoða það á PDF formi með því að smella hérna.
Sunnudagur, 17. júlí 2005
Fram-blaðið 2005
Fram-blaðið kom út í dag. Þetta er glæsilegt blað sem útgáfufyrirtækið Media Group ehf gaf út í samvinnu við knattspyrnufélagið Fram. Blaðið er stútfullt af efni og má meðal annars finna í blaðinu viðtöl við Ólaf Kristjánsson þjálfara, Ríkharður Daðason fjallar um atvinnumenskuna, Þorsteinn J biður menn að halda sig á jörðinni, Snorri Már er ferskur að vanda og Jón Steinar Gunnlaugsson dómariræðir um Fram og Fram-tíðina. Hægt er að nálgast blaðið á þjónustustöðum í Safamýri og einnig er hægt að smella á hér til að sjá það í PDF-útgáfu.
Föstudagur, 15. júlí 2005
FH-blaðið 2005
Media Group ehf sá um útgáfu FH-blaðsins árið 2005. Blaðið er hið glæsilegasta, 40 síður og stútfullt af efni. Meðal efnis eru viðtöl við Emil Hallfreðsson hjá Tottenham, Arnar Þór Viðarsson hjá Lokeren, Pétur Stephensen framkvæmdastjóri er tekinn tali, Guðmundur Árni Stefánsson Sendiherra spjallar um FH, Halli í Mafíunni segir sitt álit á hlutunum, Heimir Guðjónsson talar um ferilinn og Hörður Magnússon hefur sína skoðanir á málunum. Þetta er aðeins hluti af efni blaðsins en hægt er að skoða það á PDF formi með því að smella hérna.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook