Sem náinn vinur Tigers og fyrrum herbergis- og golfliðsfélagi Tigers í háskóla er Notah Begay III orðinn nokkurs konar óopinber talsmaður Tigers í öllum málefnum sem lúta á Tiger í bandarískum fjölmiðlum.
Notah hefir verið eins náinn herbúðum Tibers eins og nokkur hefir komist þessa síðustu mánuði. Í gær (þriðjudaginn 16/3 2010) þegar Tiger tilkynnti endurkomu sína í keppnisgolfið á Masters í næsta mánuði, sagði Begay að sig hefði grunað hvar endurkoma Tigers yrði.
“Ég gæti ekki hugsað mér betri stað fyrir Tiger að endurnýja kynnin við keppnisgolf heldur en á Augusta National og á Masters; sbr. sögu keppninnar og hvernig hún er haldin,” sagði Begay fréttamanni PGAtour.com í gegnum símann.
“Eini gallinn er að ég vona að umstangið og fjölmiðlaathyglin taki ekki frá þeirri staðreynd að þetta er risamót, að þetta allt skyggi ekki á aðra kylfinga vikuna sem mótið er.”
Gangi ykkur vel með það! Masters hefir verið haldið í Augusta, Georgia í áratugi og átt sínar stóru stundir bæði innan og utan vallar, en bærinn sem telur 194.000 íbúa mun fá til sín flóð af fólki, sem aldrei áður.
“Ég held að líklega hafi margir atvinnumannanna áhyggjur og eru e.t.v. í uppnámi vegna þess að þetta veldur truflun,” sagði Notah. “En margir aðrir eru líklega glaðir bara að hann skuli verið kominn aftur.”
“Þetta verður eflaust mesta áhorf í golfsögunni. Það er ekkert fordæmi sem hægt er að bera þetta saman við, hvorki í golfi né neinni annarri íþrótt. Allir munu bara verða að sjá hvað setur.”
Eða sitja á stólbrún, sófabrún eða barstólsbrún. Á Jacksonville International flugvellinum í gær voru allar stöðvar stilltar á fréttirnar um tilkynningu Tigers.
Frá sjónarhóli skynsemi og keppni, þá er skiljanlegt að Tiger snúi sér aftur að golfi á Masters – öfugt við Tavistock Cup eða Arnold Palmer Invitational, en í báðar keppnir hafði verið talið að hann myndi mæta á.
“Verandi sá keppnismaður sem hann er, þá er Tiger að reyna að skapa bestu aðstöðu til þess að snúa aftur og keppa,” sagði Notah. “Frá sjónarhóli öryggismála, þá er líklega ekki betri staður í heiminum til þess að spila golf á.”
Notah Begay III, sem lenti undir smásjá almennings – þó að það hafi verið í mun minna mæli – vegna ölvunarakstursmáls síns og fangelsisvistar sinnar í kjölfarið, árið 2000, sagði að hann hefði ekki haft svo mikið samband við Tiger á síðustu mánuðum nema til þess að hjálpa honum við fjölskyldumálin.
Notah sagði að “til þess að ná fram skerpu í golfleik (Tigers) þá myndi hafa verið frábært að sjá hann spila á Bay Hill eða jafnvel í Houston (á Shell Houston Open) vegna þess að keppnin er sett upp svipað og á Augusta National.”
Við hverju getum við búist af Tiger þegar hann snýr aftur? Enginn veit það þar til hann tíar upp fimmtudagsmorguninn í apríl á Augusta National, í keppni sem hann hefur sigrað 4 sinnum, síðast árið 2005.
Notah bætti við að þessi reynsla utan golfvallarins hefði breytt Tiger til hins betra.
“Þetta hefir verið sársaukafullt og erfitt fyrir alla aðila,” sagði Notah. “Hann er virkilega mun auðmýkri og jarðbundnari.”
“Allt þetta mál hefir tekið hann burt úr heiðhvolfinu sem hann var áður í, á stað þar sem hann hefir þurft að endurmeta sjálfan sig og forgangsraða. Það er augljós auðmýkt til staðar. Og örlítil auðmýkt hefir aldrei skaðað neinn.”






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook