Sunnudagur, 27. júní 2010 | Ragnar Vignir | ragnar@sport.is

Pepsi deild karla | Keflavík vann Val á Vodafone-vellinum | Myndir

Mynd: Wei Quan

Keflavík vannVal 2-0 í leik liðanna í Pepsi-deildinni í dag. Guðjón Árni Antoníusson og Brynjar Örn Guðmundsson skoruðu mörk Keflvíkinga.

Fyrir leikinn voru liðin í 3. og 4. sæti deildarinnar og því um sannkallaðann toppslag að ræða.  Hjá Val var ein breyting á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Stjörnunni, Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á miðjunna í stað Hauks Sigurðarssonar sem var banni.

Keflvíkinga vantaði sterka menn, Andri Steinn Birgisson og Jóhann Birnir Guðmundsson voru meiddir.

Keflvíkingar byrjuðu mun betur og virkuðu grimmari í sínum aðgerðum, Valsmenn horfðu á og fóru vart fram yfir miðju fyrstu fimm mínútur leiksins. Fyrsta alvöru marktækifæri leiksins kom á 13. mínútu. Hólmar Örn Rúnarsson  fór illa með Gregg Ross á vinstri kantinum og sendi boltann fyrir markið þar sem Magnús Sverrir Þorsteinsson fékk tíma með boltann, þrjá metra frá miðju markinu og gott fast skot hans var vel varið af Kjartani Sturlusyni.

Keflvíkingar voru mun meira með boltann, baráttuleysi Valsmanna var með ólíkindum. Um miðbik fyrri hálfleiks unnu Valsarar sig inn í leikinn og meiri barátta var í leikmönnum á miðjunni, þrátt fyrir það höfðu gestirnir yfirhöndina og mörk skot þeirra á markið gáfu horn og því var stöðug pressa að marki Vals.

Fyrsta markskot heimamanna kom á 28. mínútu liðsins, eftir góðann sprett upp hægri kant náði Arnar Sveinn Geirsson góðu skot sem stefndi í markvinkilinn nær en Ómar Jóhannson varði vel í horn. Skömmu síðar komst Danny König einn í gegn og átti einungis Ómar markvörð eftir, sá danski skaut beint á Ómar og gullið tækifæri fór fyrir lítið. König fær nokkur marktækifæri í hverjum leik, en nýting hans er mjög slök.
Á 35. mínútu átti Magnús Þorsteinnson glæsilegt skot á mark sem fór stöngina og út, ef Magnús hefði skorað hefði markið komið til greina sem mark ársins.

Undir lok fyrri hálfleiks einkenndist leikurinn af mikilli stöðubaráttu og lítið var um opin marktækifæri. Tæklingar voru margar og greinilegt var að leikmenn voru meðvitaðir um mikilvægi leiksins. Valsmenn sóttu meira og fengu hornspyrnu og hálffæri sem hefðu getað orðið að góðum færum en ekkert varð úr.  Hörku fyrri hálfleik lauk markalausum.

Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega og gestirnir voru sterkari. Á 53. mínútu kom fyrsta mark leiksins og það var Keflvíkinga. Slök sending Rúnars Sigurjónssonar miðjumanns Vals gaf Keflvíkingum gullið marktækifæri og það nýtti Guðjón Árni Antoníusson vel og kom gestunum yfir. Guðjón komst inn í sendingu Rúnars til baka á varnarmenn Vals, slæm mistök.

Eftir markið bökkuðu Keflvíkingar til muna, voru mjög agaðir og skipulagðir í sínum leik og gáfu Val lítinn tíma með boltann, sóknartilburðir Vals voru ekki miklir, spil liðsins var of hægt og leikmenn tóku  of margar snertingar á boltann í stað þess að sækja hratt fram. Heimamenn voru meira með boltann í seinni hálfleik en náðu ekki að skapa sér nægjanlega hættuleg færi.

Valsmenn virtust missa móðinn gegn sterkri Keflavíkurvörninni, á 85. mínútu sóttu gestirnir hratt í skyndisókn, boltinn fór til Brynjars Guðmundssonar sem hafði nægann tíma fyrir framan markteig Vals og létt skotið vaða. Boltinn fór í fallegum sveig framhjá Kjartani í marki Vals og staðan því orðin 2-0 fyrir Keflavík sem var sanngjarnt.

2-0 urðu lokatölur leiksins og sennilega vilja Valsmenn gleyma þessum leik sem fyrst.

Leikmenn Vals áttu ekki sinn besta leik í dag, hreinlega langt frá því. Leikur liðsins var hægur, leikmenn virkuðu þreyttir og andlausir. Valsmenn komust aldrei í takt við leikinn og áttu lítið skilið í dag. Liðið má greinilega ekki við því að missa þá baráttu sem Haukur Páll Sigurðsson kemur með í liðið.

Keflvíkingar voru agaðir og skipulagðir í sínum leik. Sóknartilburðir liðsins voru vel útfærðir, en varnar-og miðjuleikur liðsins var góður og þéttur og mun skila liðinu stigum í sumar.

Viðtöl úr leiknum má finna í Sportvarpinu.

Wei Quan var á vellinum og fangaði þessar myndir.