Sunnudagur, 18. júlí 2010 | Valur Jónatansson | valur@igolf.is

Guðmundur Ágúst og Karen Íslandsmeistarar í flokki 17-18 ára

Mynd: Stefán Garðarsson

Lokahringur á íslandsmótsins í höggleik unglinga á Arion bankamótaröðinni er leikinn í dag við frábærar aðstæður á Vestmannaeyjavelli. Nú þegar hafa fjórir flokkar lokið leik og krýndir íslandsmeistarar í flokkum pilta 17-18 ára, stúlkna 17-18 ára, telpna 15-16 ára og stelpna 14 ára og yngri.

Íslandsmeistari pilta 17-18 ára er Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR, en hann lék í dag á 67 höggum. Fyrir daginn í dag var hann í þriðja sæti en glæsilega spilamennska hans í dag tryggði honum þennan eftirsótt titil.

Í flokki stúlkna var það suðurnesja stúlkan Karen Guðnadóttir GS sem hampar íslandsmeistaratitlinum, Karen lék í dag á 79 höggum.

Í flokki stelpna er það Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK sem stóð uppi sem sigurvegari. Hún hafði betur gegn nöfnu sinni Guðrúni Rún Pétursdóttur GR með minnsta mun.

Þórdís Rögnvaldsdóttir GHD Dalvík kom sú og sigraði í flokki stúlkna 14 ára og yngri, hún lék hringina þrjá á 262 höggum einu minna en Ragnhildur Kristinsdóttir GR.

Piltar 17-18 ára.

1 Guðmundur Ágúst Kristjáns. GR 74 68 67 209 -1
2 Rúnar Arnórsson GK -72 66 72 210 0
3 Magnús B. Sigurðsson GR 76 73 67 216 +6
4 Rúnar Örn Grétarsson GKG 69 75 74 218 +8
5 Páll Theodórsson GKJ 77 71 70 218 +8
6 Gísli Þór Þórðarson GR 71 70 77 218 +8

Stúlkur 17-18 ára.
1 Karen Guðnadóttir GS 77 75 79 231
2 Arndís Eva Finnsdóttir GK 78 77 82 237
3 Berglind Björnsdóttir GR 77 80 81 238
4 Íris Katla Guðmundsdóttir GR 81 80 78 239
5 Jódís Bóasdóttir GK 75 79 89 243

Telpur 15-16 ára.
1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 75 75 80 230
2 Guðrún Pétursdóttir GR 79 74 78 231
3 Sunna Víðisdóttir GR 83 77 78 238
4 Anna Sólveig Snorradóttir GK 79 82 87 248
5 Halla Björk Ragnarsdóttir GR 84 83 82 249

Stúlkur 14-15 ára:
1 Þórdís Rögnvaldsdóttir GHD 87 87 88 262
2 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 94 90 79 263
3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 91 91 90 272
4 Stefanía Elsa Jónsdóttir GA 98 96 102 296
5 Birta Dís Jónsdóttir GHD 102 97 100 299