Hulda Sigtryggsdóttir úr GR er 4. kylfingurinn núna á einni viku sem fer holu í höggi á Jaðarsvelli. Hún náði draumahögginu á 11. braut, sló með 7 brautartré og var kúlan alltaf beint á holu lenti rétt við og rúllaði beint í.
Eins og fram hefur komið fór Björgvin Þorsteinsson GA holu í höggi dag eftir dag föstudag og laugardag, Albert Hannesson úr GA líka á föstudag og Hjörvar Maronsson GA núna á þriðjudaginn.
Þetta fer að verða spurning um að skella sér norður og spila á Jaðarsvelli.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook