Laugardagur, 24. júlí 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Sigmundur og Ólöf leiða á Kiðjabergsvelli

Það er í mörg horn að líta á Kiðjabergsvelli

Sigmundur Einar Másson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar hefur eins högg forystu í karlaflokki eftir þriðja hring.  Sigmundir lék á 71 höggi í dag líkt og fyrstu tvo dagana, par vallarins er 71 þannig að hann er á pari samanlagt. Birgir Leifur Hafþórsson GKG, Heiðar Davíð Bragason GHD og Hlynur Geir Hjartarson GK eru jafnir þeir eru á einu höggi yfir pari samanlagt.

Örvar Samúelsson GA lék allra karla best hann  lék á þremur undir pari, Örvar fékk sex fugla í röð á 13,14,15,16,17 og 18 holu.  Örvar fékk samtals átta fugla á hringnum í dag og er því til als líklegur.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur leiðir í kvennaflokki eftir þriðja dag hún hefur eins höggs forskot á Tinnu Jóhannsdóttur Golfklúbbnum Keili.  Ólafía Þórunn lék í dag á 76 höggum eða 5 höggum yfir pari sem dugði til að halda forystu, Tinna lék allra kvenna best í dag og endaði á 70 höggum sem er par vallarins. Í þriðja sæti er Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili.

Í dag gátu  áhugasamir fylgst með okkar bestu kylfingum heima í stofu því bein útsending var á RÚV, á morgun verður einnig bein útsending á RÚV sem hefst kl 14:00.  Fjöldi áhorfenda lagði leið sína á Kiðjabergsvöll í dag og setti þeir mikinn svip sinn á völlinn.  Á morgun hefst leikur um kl 8:00 og er áætlað að lokahollin í kvennaflokki fari út um 12 leytið og lokaholl hjá körlunum fari út kl 13:20.

Hægt er að fylgjast með skori keppenda hér.