Laugardagur, 24. júlí 2010 | Valur Jónatansson | valur@igolf.is

Skemmdarverk á Kiðjabergsvelli

Mynd: iGolf.is

Skemmdarvargar voru á ferð á Kiðjabergsvelli í nótt þar sem Íslandsmótið í golfi fer nú fram. Þeir gerðu sér það að leik að troða bjórdósum ofan í holuna á 7. flötinni og tröðkuðu allt í kringum hana og eyðilögðu.

Þetta varð til þess að vallarstarfsmenn urðu að færa holuna, af svæði þrjú á flötinni og yfir á svæði fjögur. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.

Starfsmenn vallarins taka nýjar holur á hverju kvöldi fyrir næsta keppnisdag og var búið að ákvaða allar holustaðsetningar fyrir hvern mótsdag og prenta það inn í skorkortin sem keppendur fá.

Þetta er ljótur leikur og ekki til eftirbreytni.