Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG og Tinna Jóhannsdóttir úr GK urðu Íslandsmeistarar í höggleik 2010 á Kiðjabergsvelli. Birgir Leifur vann með þriggja högga mun og var að vinna titilinn í fjórða sinn en Tinna í fyrsta skipti, tryggði sér sigurinn með glæsilegum fugli á lokaholunni.
Framkvæmd mótsins var eins og best verður á kosið og voru keppendur yfirleitt ánægðir með völlinn. Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti GSÍ, sagði í ávarpi sínu að móti loknu að Kiðjabergsvöllur hafi nú sannað að hann væri einn besti keppnisvöllur landsins.
Birgir Leifur lék lokahringinn á einu höggi undir pari og lauk leik á parinu samtals. Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari í holukeppni 2009 úr GKJ, náði öðru sæti með því að leika á 69 höggum í dag, eða tveimur höggum undir pari. Hann lauk leik á þremur yfir pari samtals. Sigmundur Einar Másson úr GKG, sem, hafði eins höggs forskot á Birgi Leif fyrir lokahringinn, missti flugið á seinni níu holunum og endaði á fimm höggum yfir pari samtals og fékk bronsverðlaunin.
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili vann með tveggja högga mun, en fyrir lokaholuna var Ólafía Þórunn Kristinsdóttir jöfn henni í efsta sæti. Þær höfðu skipst á um að hafa forystu á lokahringnum. Spennan var því mikil á 18. teignum. Tinna gerði sér lítið fyrir og sló inn á flöt í teighögginu á meðan Ólafía Þórunn hitti boltann ekki alveg nægilega vel og missti boltann í bönker sem er um 70 metrum fyrir framan flötina. Tinna fékk öruggan fugl á lokaholunni á meðan Ólafía Þórunn varð að sætta sig við skolla og annað sætið. Þessi 17 ára gamla stúlka úr GR hafði verið með forystu fyrstu þrjá hringina og þetta mót fer væntanlega inn í reynslubanka hennar, enda á hún svo sannarlega framtíðina fyrir sér í golfinu.
Signý Arnórsdóttir úr GK hafnaði í þriðja sæti, var einu höggi á eftir Ólafíu og þremur á eftir Tinnu.. Nína Björk Geirsdóttir úr Kili varð í 4. sæti og fráfarandi Íslandsmeistari, Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni, varð í 5. sæti.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook