Mánudagur, 26. júlí 2010 | Hans Guðmundsson | hans@igolf.is

Richard S. Johnson sigraði á heimavelli í Stokkhólmi

Mynd: Nordic Photos

Svíinn með bandaríska nafnið Richard S. Johnson setti niður 10 metra pútt á 18. flöt fyrir sigri á lokadeginum á Nordea Scandinavian Masters í Stokkhólmi í gær. Þetta er aðeins í annað sinn sem heimamaður sigrar á mótinu í 12 ára sögu þess.

Johnson lék lokahringinn á 71 höggi og kláraði mótið á 277 höggum og fékk tæplega 53 milljónir króna í verðlaun. Þetta er annar sigur hans á Evróputúrnum, en sá fyrsti kom fyrir átta árum síðan.

Lokastaðan.