Golfmót á vegum Golfsambands fatlaðra á Íslandi (GSFÍ) verður þriðjudaginn 10.ágúst klukkan 17:00 á golfvellinum Ljúflingi, sem er við Urriðavöll hjá Golfklúbbi Oddfellowa og Golfklúbbnum Oddi. Um er að ræða 9 holu golfmót.
Til að komast á völlinn er best að fara að Vífilstaðaspítala í Garðabæ keyra fram hjá honum og beyga síðan til hægri á vegamótum sem koma fljótlega. Keyra þann veg sem leið liggur ekki beygja inn á Heiðmerkurveginn, heldur halda beint áfram þar og þá skömmu síðar birtist aðstaða Golfklúbbsins Odds á vinstri hönd.
Allir eiga að mæta rétt fyrir klukkan 17:00 þann 10. ágúst sem er næsti þriðjudagur.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook