Ingi Rúnar Gíslason, íþróttastjóri GKj eða “el Rey aka Kóngurinn”, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 1. holu Hlíðavallar í Opna Örninn golfverslunarmótinu sem fram fór á frídegi verslunarmanna. Notaði hann 56° wedge við höggið og lenti boltinn beint ofan í holunni án viðkomu við flötina þ.e. hann “karfaði” boltann.
Það má segja að þetta hafi verið eina leiðin í holuna þar sem það var smá meðvindur og holan framalega beint yfir sandglompuna. Þetta er í annað sinn sem Ingi Rúnar nær draumahögginu og óskum við á iGolf.is honum til hamingju með þetta afrek.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook