Tiger Woods á á hættu að missa af FedEx Cup umspilinu, sem hefst 26. ágúst n.k. á Barclays mótinu í Ridgewood Country Club í Paramus, New Jersey.
Tiger er sem stendur í 111. sæti á FedEx Cup stigalistanum, sem er ekki nógu gott til þess að vera meðal 100 leikmanna í umspilinu. Hann hefir sigrað umspilið tvívegis og 10 milljón dollara 1. vinning þess síðan að mótið hófst 2007 (Hinn sigurvegarinn er Vijay Singh, sem sigraði þegar Tiger var meiddur 2008).
Að missa aðalaðdráttarafl mótsins, sem Tiger er í umspilinu er slæmt fyrir túrinn, en kannski er jafnvel enn verra að Deutsche Bank Championship, sem fram fer á TPC Boston, en svo hefir verið síðan á árinu 2003, á á hættu að missa einn helsta styrktaraðila sinn. Mótið og verlaunin $7.5 milljón hafa verið í nánum tengslum við góðgerðarsjóði Tigers.
Upprunalegur styrktarsamningur við Deutsche Bank var til 4 ára, með möguleika á framlengingu til 2 ára. Hvað sem öðru líður þá sagði Emily Kay á Examiner.com að Seth Waugh, aðalframkvæmdarstjóri Deutsche Bank Americas, hefði látið frá sér fara að jafnvel þótt bankinn vildi halda áfram að styrkja mótið þá væri það alls óvíst nú.
“Ef valið stendur á milli þess að láta féð renna til þess að halda stöðugildum í bankanum eða styrkja golfmót, þá er ekki spurning hvað verður ofan á – þetta er ekki sanngjarn slagur.” sagði Waugh “[í þessu efnahagsumhverfi] þá er ekki hægt að taka neinu sem gefnu lengur.”






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook