Laugardagur, 7. ágúst 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Hlynur Geir og Birgir Leifur mætast í 8-manna úrslitum

Mynd: NordicPhotos

Nú eru aðeins átta kylfingar eftir á Íslandsmótinu í holukeppni karla á Akranesi og eins er ljóst hvaða fjórar konur leika í undanúrslitum kvenna á morgun. Ljóst er að Íslandsmeistarar karla og kvenna í holukeppni frá í fyrra, Kristján Þór Einarsson og Signý Arnórsdóttir, ná ekki að verja titla sína.

Þeir sem leika í 8-manna úrslitum karla eru:

Hlynur Geir Hjartarson – Birgir Leifur Hafþórsson
Björgvin S Kristjánsson – Arnar Snær Hákonarsson
Nökkvi Gunnarsson – Þórður Rafn Gissusarson
Magnús Lárusson – Guðjón H. Hilmarsson

Þeir leika síðar í dag (kl. 13.30), en undanúrslit og úrslit fara fram á morgun.

Í undanúrslitum kvenna á morgun leika:

Valdís Þóra Jónsdóttir – Ragnhildur Sigurðardóttir