Mánudagur, 9. ágúst 2010 | Hans Guðmundsson | hans@igolf.is

ABC barnahjálp styrktarmót á Húsafellsvelli 28. ágúst

Mynd: iGolf.is

Golfklúbbur Húsafells og Golf18 verða með styrktarmót til fjáröflunar fyrir þeim 6 ABC börnum sem Golf18 greiðir fulla framfærslu fyrir í tengslum við ABC bikarinn og ABC mótaröðina, en þar fer hluti þáttökugjalds í þetta málefni.

Vegna meira en helmingi minni þáttöku á ABC mótunum, sem rekja má til efnahagskreppunnar, þá er langt í frá að Golf18 hafi fyrir öllum 6 börnunum. Það kemur ekki til greina að setja þau út á götuna aftur og því er þetta mót sett upp.

Mótið er “Shoot out” mót, sem þýðir að allir eru ræstir út á sama tíma. Skráning á golf.is er eingöngu til að raða keppendum saman í ráshópa.

Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni, einn opinn flokkur. Karlar fá hæst 24 í forgjöf og konur 28. Verðlaunagripir verða veittir fyrir 3 efstu sætin.

Þáttökugjald er 3.500 krónur og renna 1.500 krónur í þetta verkefni Golf18 hjá ABC barnahjálp. Ef svo vill til að þátttakendur vilji greiða hærra gjald í mótið rennur allt umfram 2.000 krónum til ABC barnanna.

Endilega takið daginn frá, en skráning hefst von bráðar á golf.is.

Sjá ABC börnin okkar hér.