Mánudagur, 9. ágúst 2010 | Hans Guðmundsson | hans@igolf.is

Mahan sigraði á Bridgestone – Verður í Ryder-liði USA

Mynd: iGolf.is

Hunter Mahan gerði sér lítið fyrir og sigraði á Heimsmótinu, Bridgestone mótinu í dag með því að leika lokahringinn á 64 höggum og í gær á 66 höggum og klára mótið á samtals 12 höggum undir pari. Þetta er langstærsti sigurinn á hans ferli.

Þetta var þriðji sigur Mahan á ferlinum og númer 2 á þessu ári, en hann er 28 ára gamall nú. Með þessum sigri tryggði  hann sér sæti í Ryder Cup liði Bandaríkjanna.

Ryan Palmer endaði tveimur höggum á eftir Mahan á samtals 10 höggum undir parinu og Goosen og Van Pelt urðu jafnir í 3. sæti.

Lokastaðan.