Hann var undrabarn þessarar kynslóðar. Ungur hip Spánverji sem átti að keppa við allar helstu stórstjörnur golfheimsins og eiga sínar stundir. Hann hefur útlitið með sér, persónutöfrana, brosið og gat slegið golfbolta eins og engill.
Þetta var áður, nú er Sergio Garcia að fara að taka sér tveggja mánaðar pásu frá golfinu vegna lélegs árangurs á golfvellinum. Garcia sem nú er 30 ára gamall missir því af Ryder Cup keppninni í fyrsta skipti síðan honum skaut upp á stjörnuhimininn aðeins táningur að aldri.
Síðasti sigur Garcia á PGA eða Europeantour var 2008 og má því segja að hann hafi ekki verið að leika vel í tvö ár. Hann á eitt topp 10 mót, en það var ekki einu sinni í höggleikskeppni.
Garcia var hreinskilinn um ákvörðun sína og sagði: “Ég þarf að sakna golfsins aðeins.” Það gæti sannarlega hjálpað honum á rétta braut aftur. Hann mun keppa næst í október á Castellon Masters sem verður á heimavelli hans á Spáni.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook