Eftir slökustu frammistöðu á atvinnumannsferli sínum, var Tiger mættur aftur á æfingasvæðið í gær í Whistling Straits, þar sem eitt risamót atvinnumennskunnar í golfinu hefst nú á fimmtudaginn, PGA Championship.
Tiger hefir þegar unnið 14 risamót en ekkert síðan hann sigraði á Opna bandaríska 2008. Þegar PGA Championship var síðast haldið á Whistling Straits, árið 2004, var Tiger T-24.
Tiger, sem enn er nr. 1 á heimslistanum (og einungis þar)var jafn öðrum í 4. sæti á Masters, sem var fyrsti viðburður sem hann tók þátt í eftir sjálfskipaða útlegð eftir játningar um fjöldaframhjáhald. Hann hafði einnig tækifæri til þess að sigra Opna bandaríska en en lauk keppni með hring upp á 75 högg á Pebble Beach. Tiger komst aldrei nálægt sigursæti á Opna breska, sem fram fór nú síðast á St. Andrews, var með hringi upp á 67-73-73-72 og var T-23.
En líklega hefir Tiger aldrei litið verr út en á WGC-Bridgestone Invitational mótinu.
Tiger hefir aldrei verið neðar en á topp 5 s.l. 11 skipti sem hann hefir tekið þátt í mótinu. Hann skilaði inn skori upp á +18 yfir pari, sem er hæsta 72-holu skor hans á ferlinum; Tiger var T-78, heilum 30 höggum á eftir sigurvegara mótsins Hunter Mahan. Þetta er í fyrsta sinn sem Tiger var yfir pari á öllum hringjum í 4 hringja mótinu í 7 ár.
Sem stendur er Tiger nr. 10 á Ryder Cup listanum (8 efstu komast sjálfkrafa í liðið) og með 2 mót framundan þar til FedEx Cup umspilið fer fram þá er ekki öruggt að hann sé meðal topp 125, sem fá þátttökurétt í umspilinu, sem er opnunaatrið “The Barclays”.
HÉR MÁ SJÁ MYNDIR AF TIGER VIÐ ÆFINGAR Á WHISTLING STRAITS Á MÁNUDAG






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook