Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Hvernig Mickelson getur náð toppi heimslistans

Mynd: NordicPhotos

Phil Mickelson er ekki sá eini sem á möguleika á að velta Tiger úr 1. sæti heimslistans.

Aðra vikuna í röð horfir Tiger yfir öxl sér á tvo kylfinga sem geta bundið enda á 270 vikna met setu hans á toppi heimslistans – Mickelson og Stricker (Westwood er meiddur).

Mickelson nær toppi listans ef eitthvað af þessum 5 atvikum á sér stað: (1) hann vinnur sigur á PGA Championship risamótinu; (2) hann verður í 2. sæti á PGA Championship risamótinu og Tiger verður neðar en í 3. sæti; (3) Mickelson verður í 3. sæti, en Tiger má ekki vera í sæti fyrir ofan 11. sætið; Mickelson verður í 4. sæti; Tiger má ekki vera ofar en í 46. sæti; Phil og Tiger verða jafnir í 4. sæti og Tiger neðar en Phil.

Staðan er mun erfiðari fyrir Steve Stricker ætli hann sér að velta Tiger úr efsta sæti heimslistans. Steve Stricker nær 1. sæti heimslistans aðeins með því að sigra á PGA Championship, en aðeins ef Tiger er ekki meðal 24 efstu OG Phil er ekki meðal efstu 3.