Þá er hann fundinn sem hefur átt verri viku í sandglompu en Dustin Johnson. Þessi saga byrjaði á Topstone golfvellinum í Suður Windsor, Conneticut, þegar vallarstarfsmenn komu til vinnu á miðvikudagsmorgun. SAAB bifreið var á hvolfi í sandglompu við 18. flöt vallarins.
Hvað kylfu notar maður til að slá svona grip úr sandglompu?
Nokkru eftir að þessi bifreið fannst þarna tilkynnti maður til lögreglunnar að bíl sínum hefði verið stolið, svörtum SAAB. Humm.
En lögregluna grunaði gvend um að hafa verið sjálfur á bílnum, sem reyndist svo vera og var hann því ákærður fyrir þetta atvikið, og auk þess sem hann þurfti að greiða fyrir skemmdir á vellinum fékk hann sekt fyrir að gefa ranga skýrslu til lögreglunnar.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook