Vefmiðillinn Welt.Online er ósköp svipaður öðrum þýskum fjölmiðlum þessa dagana; allir allt frá Bild til Frankfurter Allgemeine ausa nýju golfstjörnuna Martin Kaymer lofi vegna frábærrar frammistöðu hans á PGA meistaramótinu í Kohler, Wisconsin um síðustu helgi.
Fyrirsögn Theo Breiding, blaðamanns Welt.Online er “Golfprofi Martin Kaymer ist jetzt ein Weltstar” (Golfatvinnumaðurinn Martin Kaymer er núna heimsþekkt stjarna.” Í lausegri þýðingu er afgangurinn af greininni eftirfarandi:
“Martin Kaymer er annar þýski kylfingurinn á eftir Bernhard Langer til þess að sigra á risamóti. Hann verðlaunaði sjálfaði sjálfan sig með því að fljúga með kærustu sinni, Allison Micheletti, í karabíska hafið.
Martin Kaymer getur brosað breitt, því eftir fyrsta sigur hans á risamóti er hann nú heimsþekkt stjarna. Tekur hann flikkflakk af gleði? Nei. Kreppir hann hnefann sigri hrósandi? Rangt til getið. Fagnaðaröskur? Ekki sjens. Unga hetjan leyfði sér aðeins létt bros og vinkaði áhorfendum eftir stærsta sigur feril síns.
Martin Kaymer, sem varð að heimsþekktri stjörnu s.l. sunnudag, sigraði PGA meistaramótið í Kohler/Wisconsin í umspili gegn Bandaríkjamanninum Bubba Watson og var þetta jafnframt 1. sigur hans á risamóti. Hann er á eftir Bernhard Langer, sem sigraði árin 1985 og 1993 á US Masters, einungis 2. Þjóðverjinn sem tekist hefir að sigra á einu hinna 4 risamóta.
Og Langer sem Kaymer hefir ávallt litið upp til sem mikillar fyrirmyndar var meðal þeirra sem samfögnuðu Kaymer fyrstir af öllum: “Ég gleðst innilega yfir sigri hans. Hann hefir í 4 daga haft kraftinn til þess að taka allt inn á sig og halda haus í umspilinu.”
Sigur á risamóti og aðeins 25 ára – fyrir aðra væri það ástæða til þess að falla á knén eða henda pútternum upp í loftið. Kaymer hélt hins vegar ró sinni og tók á móti hamingjuóskum Watsons og faðmaði caddýinn sinn, Craig Connelly og vinkonu sína Allison Micheletti og tók síðan við verðlaunum. “Hvaða þýðingu þetta hefir fyrir golf í Þýskalandi veit ég ekki. Ég verð fyrst að ná áttum hvað þetta þýðir fyrir mig. Ég bara næ þessu ekki,” sagði Kaymer með risastóran Wanamaker bikarinn í fanginu. “Ég fæ gæsahúð þegar ég tala um þetta, Það er virkilega cool, að sjá nafnið mitt nú meðal golfgoðsagna á borð við Jack Nicklaus og Arnold Palmer.”
Ef Martin Kaymer hefði orðið atvinnumaður í fótbolta, sem ekkert var ólíklegt eftir velgengni með unglingaliðum Fortuna Düsseldorf og var vel möguleiki, þá hefði hann ekki verið týpan sem eftir draumamark hefði rifið sig út treyjunni í átt að hornfánanum. Að hafa stjórn á tilfinningum sínum undir pressu er einn af stærri kostum hans (Kaymer). Þetta er eiginleiki sem atvinnumenn í golfi geta ekki sigrað mót án; svo ekki sé talað um risamót, eins og sannaðist á dramatískum lokadegi 92. PGA meistaramótsins.
Á Whistling Straits golfvellinum eru u.þ.b. 1200 sandglompur og háðfuglarnir halda því fram að á vellinum séu jafnframt u.þ.b. 12 milljarðar af mýflugum. Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson, sem þegar í júní á Opna bandaríska var orðinn að tragíkinni holdi klæddri, lauk keppni um sigurtitilinn á umdeildu atviki. Kylfa hans snerti sandinn í hliðarsandglompu þrátt fyrir margítrekaða staðarreglu um að allar söndugar hliðar vallarins teldust vera sandglompur og var honum tjáð það af dómara eftir að hann lauk keppni.
Ef Johnson hefði vegna þessara mistaka ekki þurft að bæta við 2 höggum í víti (en skolli hans á brautinni varð að triple-bogey) þá hefði Johnson farið í umspilið með Kaymer og Watson; en hann varð að sætta sig við 5. sætið. “Það var sorglegt að horfa upp á þetta,” sagði kaymer sem með knúði fram umspilið með því að setja niður erfitt 5 metra pútt á 18. braut, “en við vissum að keppnin um sigursætið yrði bara milli okkar (þ.e. hans og Bubba Watson).”
Mat caddý Kaymers átti eftir að reynast rétt: “Ef kemur til umspils er Martin fæddur sigurvegari”. Watson vann fystu holuna með fugli, Kaymer hins vegar 2. brautina einnig með fugli. Sigurinn var nánast tryggður þegar hinn örvhenti leikmaður frá Bagdad í Flórída (Bubba Watson) sló bolta sínum í vatnið. “Þegar bolti Bubba Watson lenti í vatnstorfærunni við síðustu holuna vissi ég: Hann spilar ekki undir 5 höggum. Þannig að ég reyndi að spila upp á par (4 högg). Það var allt sem ég vildi gera,” sagði Kaymer. Honum nægði að fá skolla vegna þess að Watson náði ekki inn á flöt og spilaði brautina á 6 höggum.´
160 metra högg Martin Kaymer lenti beint á flötinni – ískalt, sjálfsöruggt eins og beint upp úr golfkennslubókinni. “Ég var stressaður allan lokahringinn, en í umspilinu var ég algerlega rólegur og mjög sjálfsöruggur,” sagði Kaymer, sem í fyrsta skipti á lokahringnum tók forystuna á 6. braut. “Þetta hljómar kannski skringilega, en pressan var bara einhvern veginn horfin, af því að það versta sem gat gerst upp úr þessu var að ég yrði í 2. sæti.”
Fyrst heyrðust fréttir af Kaymer í júní 2006 þegar hann átti (drauma)hring (allra kylfinga) upp á 59 högg á 3. klassa EPD túrnum, síðan spilaði hann í 2. flokk á Challenge Tour og hefir sigrað 6 sinnum á Evróputúrnum síðan 2008. Eftir að hafa hlotið $ 1,35 milljónir dollara s.l. helgi fór verðlaunféð, sem hann hefir unnið sér inn í € 8 milljónir. En mun mikilvægara fyrir Kaymer, sem er hin nýja nr. 5 á heimslistanum, er að hann hefir tryggt sér sæti í liði Evrópu, sem keppir um Ryder Cup í byrjun október n.k. við lið Bandaríkjanna sem á titil að verja. (Þýski blaðamaðurinn gat ekki stillt sig um að segja:) Þetta er allt annað en Tiger Woods (sem var í 28. sæti í Kohler) sem þarf að treysta á “Wildcard” frá bandaríska fyrirliðanum Corey Pavin.
Eftir að hafa tryggt sér sigur á fyrsta risamótinu og tryggt sér sæti í Ryder Cup liðinu var ekki mikið meira að gera í Kohler/Wisconsin. Kaymer flaug sunnudagsnóttina með vinkonu sinni Allison til Jamaica í verskuldað frí í karabíska hafinu.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook